Listinn sem enginn vill vera á!..2017

Á Aflafrettir.is eru margir listar í gangi um allar veiðar íslendinga.  sömuleiðis er á síðunni listi yfir norska báta,  Síðan er orðin það mikill máttarstólpi í sjómennsku bæði hérna á íslandi sem og í noregi að ég fæ að heyra það ef ég er ekki nógu duglegur í að uppfæra listanna.  


með öðrum orðum þá vilja sjómenn sjá nafn sitt á listnum og helst frekar ofarlega,

aftur á móti þá útbjó fiskistofa lista sem má segja að enginn vilji vera á , enn margir bátar eru á engu að síður,

þetta er listi yfir báta sem veiddu umframafla á strandveiðunu.

í maí þá var þetta ansi mikill fjöldi báta sem fór umfram og t.d á svæði A þá var 70% bátanna sem fóru yfir,

alls í maí þá lönduðu bátarnir 27,2 tonnum af umframafla.  Eins og fram kemur á fiskistofunni þá rennur andvirði umframaflans til Rikinsins enn aflinn sjálfur dregst frá heildarpottinuim og verður því minna til skiptanna,

Eins og sést á listanum hérna að neðan þá voru það 9 bátar sem lönduðu meira enn 300 kíló í umframafla og aflahæstur á þessum lista er Birta SU sem má segja að stakka alla aðra báta af því hann var með 642 kíló.  Birta SU er á svæði C
næstur á eftir honum var svo Hrólfur SH sem er á svæði A með 
484 kíló og síðan Snjólfur SF á svæði D með 442 kíló.


Birta SU mynd Þór Jónsson



Svæði B
Sknr Nafn Umframafli
2069 Blíðfari ÓF 79 222
6933 Húni HU 220
2125 Fengur ÞH 208
2497 Oddverji ÓF 200
6717 Gyðjan HU 193
2110 Andvari I SI 167
6783 Blíðfari HU 141
6780 Bogga í Vík HU 139
7097 Maggi Jóns HU 135
6917 Sæunn HU 129




Svæði C.
Sknr Nafn Umframafli
2635 Birta SU 642
2076 Gunnar KG ÞH 367
7661 Sædís SU 325
7057 Birna SU 277
2147 Natalía NS 272
6698 Karen Dís SU 243
7067 Hróðgeir Hvíti NS 190
7082 Rakel SH 170
2162 Hólmi ÞH 146
6836 Jón Jak ÞH 143




Svæði D
Sknr Nafn Umframafli
7400 Snjólfur SF 442
6807 Sóla GK 316
7219 Dagný ÁR 307
2564 Marín SF 305
7401 Ásbjörn SF 221
2834 Hrappur GK 214
7414 Golan ÁR 211
1906 Unnur ÁR 208
7463 Líf GK 208
7490 Hulda SF 206




Svæði A
Sknr Nafn Umframafli
6192 Hrólfur SH 484
7486 Heppinn ÍS 353
6230 Blíðfari AK 289
2151 Græðir BA 282
7485 Jóhannes á Ökrum AK 276
7419 Hrafnborg SH 274
2507 Þröstur BA 250
7788 Dýri II BA 243
7720 Brana BA 223
7531 Grímur AK 220