Loðnan er kominn,,,,, ekki eitt gramm.


 Loðnan er kominn. Bræðslurnar í Sandgerði, Helguvík og Grindavík yfirfullar af loðnu, unnið í loðnufrystingu í mörgum frystihúsum í Keflavík, Sandgerði, Garði og Grindavík, og ilmurinn af loðnunni leikur um alla bæði.....


eða... hmm nei. Það er víst árið 2022 og búið að loka öllum bræðslum á suðurnesjunum og þrátt fyrir að jú, loðnan sé fyrir utan, og skipin eru að veiða hana þá kemur ekkert til Suðurnesja.


Ef horft er á söguna þá voru það  bátar frá Suðurnesjunum sem hófu loðnuveiðar. Vonin KE var sá fyrsti  árið 1963 og þar á eftir var það Árni Magnússon GK var þar á eftir og fyrsta loðnubræðslan sem tók á móti loðnu var í Sandgerði.


Hvenær var þá síðast landað loðnu á Suðurnesjunum.


 Grindavík

 Lítum á Grindavík. Þar var landað loðnu alveg fram á vetrarvertíðina 2005. en í febrúar árið 2005 þá kom upp mikill eldur í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík. 

 Þessi verksmiðja hét áður Fiskimjöl og Lýsi og Samherji keypti verksmiðjuna árið 1997, og gerði miklar endurbætur á verksmiðjunni t.d jók afkastagetu hennar í um 1500 tonn á sólarhring,


Þegar að bruninn varð í verksmiðjunni í Grindavík í febrúar árið 2005 þá var ekki lið nema rúmt eitt ár frá því að verksmiðjan var að fullu endurbætt.

 Allur brennslubúnaður verksmiðjunnar eyðilagðist í þessum stórbruna, búnaður til hrognatöku skemmdist ekki,


Síðasti báturinn sem landaði loðnu í Grindavík var Háberg GK 299 sem landaði loðnu þann 14 mars árið 2005 alls 427 tonnum.


Eftir þessa loðnuvertíð í Grindavík þá var verksmiðjan rifin og í dag er ekkert þarna sem minnir á að hafið verið stór og mikil verksmiðja


 Sandgerði

í Sandgerði þá var það ekki eldur sem lagði niður verksmiðjuna þar. 


 Í Sandgerði var eins og að ofan segir lengi vel bræðsla sem Guðmundur á Rafnkelsstöðum í Garði rak í Sandgerði og síðan tók Hafliði Þórsson og fyrirtæki

 hans Njörður HF við rekstrinum og gerði meðal annars út loðnubátanna Dagfara GK og Sjávarborg GK.


Árið 1997 þá var fyrirtækið selt til Snæfells hf og það fyrirtæki átti þá orðið ansi margar eignir víða um landið,

 loðnuverksmiðjan í Sandgerði var lengi vel með fremur litla afkastagetu eða um 300 til 400 tonn á sólarhring,

 enn þegar að Snæfell hf keypti fyrirtækið þá var afkasta hennar aukinn í um 600 tonn á sólarhring.

 Loðnulöndun í Sandgerði jókst að nokkru þau ár sem að Snæfell rak fyrirtækið og t.d kom hið mikla aflaskip Súlan EA ansi oft  og bátur sem hét Birtingur NK sem lengst af var Sighvatur Bjarnason VE.


Árið 2001 á var kaupir Síldarvinnslan Snæfell og SVN átti þá orðið verksmiðjuna í Helguvík.

 Og árið 2003 þá var öllum starfsfólki verksmiðjunnar í Sandgerði sagt upp, og var það mikið kjaftshögg fyrir Sandgerði

 því t.d var búið að vera miklar hafnarframkvæmdir í gangi til að taka á móti stækkuðum flota af loðnubátum.


Í Viðtali sem tekið var í júní árið 2003, enn þá var verksmiðjan í Sandgerði rifin og tækin fóru víða um land þá sagði

 Hermann Jóhann Ólafsson verksmiðjustjóri að “ væntanlega verður ekki vinnsla framar á uppsjávarfiski hér í þessum bæ framar”. Því miður þá hefur það reynst rétt.


Og ástæðan fyrir þessari lokun í Sandgerði var sögð minnkaði hráefni. Þarna árið 2003 var sagt, þetta er þróun sem við getum ekki stöðvað að verksmiðjurnar fækki og bátarnir stækki.


Birtingur var síðasti til að landa loðnu í Sandgerði, í júlí árið 2002, 670 tonnum.


 Helguvík

Helguvík þar var smíðuð ný verksmiðja árið 1997 og var þá eigandi af henni SR mjöl. 

 Þessi staðsetning var mjög góð því höfnin var með mjög mikið dýpi og gátu öll stærstu loðnuskipin komist þarna að án nokkura vandræða og nóg pláss var í Helguvík fyrir verksmiðjuna.


Þorsteinn Erlingsson í Saltveri og lengi vel útgerðarmaður Örns KE sem var mikið aflaskip á loðnuveiðum hafði lengið gengið með þá hugmynd um að byggja stóra verksmiðju í Helguvík, 

og hafði komið um 1995 upp flokkunarstöð fyrir loðnu sem þá var flokkuð fyrir loðnufrystingu, enn hratið var þá brætt í Sandgerði og Grindavík.


Þessi verksmiðja í Helguvík var nokkuð öflug gat brætt tæp 1000 tonn á sólarhring.


Árið 2001 þá kaupir Síldarvinnslan SR mjöl og eins að ofan getur þá bitnaði það á  loðnuverksmiðjunni í Sandgerði, 

en verksmiðjan í Helguvík var rekin áfram og gekk rekstur hennar vel.

Árið 2019 þá var tekin ákvörðun um að SVN myndi loka verksmiðjunni í Helguvík og var það ansi mikill áfall fyrir Reykjanesbæ sem og Suðurnesin öll, 


því að með lokun þessarar verksmiðju þá var líka lokað á það að loðna væri fryst í á Suðurnesjunum eins og hafði verið gert í um 50 ár.

 Hákon EA var sá síðasti til að landa loðnu í Helguvík í desember árið 2018.


Yfir hávertíðina þá er loðna í miklu magni utan við Suðurnesin og á þeim tímum sem voru verksmiðjur t.d í Sandgerði og Grindavík þá kom fyrir að bátar lönduðu tvisvar sinnum sama daginn 

vegna þess hversu stutt var að fara á miðin.


en já þrátt fyrir að  bátar frá Suðurnesjunum sem og fiskimjölsverksmiðjur hafi verið þær fyrstu til þess að vinna og veiða loðnu 


þá kemur ekki eitt gramm af loðnu núna árið 2022 á suðurnesin


Verksmiðjan í Helguvík og loðnuskip þar við bryggju. Mynd Hilmar Bragi