Loksins loksins!,2020
Rækjuveiðarnar núna frá áramótunum hafa verið ansi litlar
aðalega hefur verið um að vera veiði hjá innanfjarðarækjubátunum í ÍSafjarðardjúpinu og í Arnarfirðinum,
enginn bátur hefur veitt úthafsrækjuna.
þangað til núna.
enn loksins þá eru einhverjir komnir á veiðar á úthafsrækjunni og eru það togarnir Klakkur ÍS og Múlaberg SI.
Báðir togarnir lönduðu á sama degi,
Múlaberg SI kom með 17,8 tonn í land og af því þá var rækja 13,5 tonn, landaði á Siglufirði,
Klakkur ÍS byrjaði með nokkru minni afla eða aðeins 1,5 tonn í fyrsta róðri sínum,
það má geta þess að í vetur þá var Klakkur ÍS í Reykjavík en verið var að setja togspil númer 3 í togaranna
svo hann gæti dregið 2 troll
KLakkur ÍS mynd Vigfús Markússon
Múlaberg SI mynd Vigfús Markússon