Löng sigling hjá Lokys til Hafnarfjarðar

Það er þónokkuð um að erlendir togarar og línubátar komi til landsins og landi þar afla


Hafnarfjörður er eiginlega stærsta höfnin á landinu, þar sem að erlend skip landa sínum afla

helst er þetta togarar og línubátar sem hafa verið á veiðum utan við 200 mílna landhelgina, 

t.d útá Reykjaneshrygg, eða á milli Grænlands og Íslands, en þar hafa togarar verið á veiðum og að mestu að vera að veiða þorsk

í flestum tilfellum þá er sigling til hafnar þetta 1 til 2 dagar

 Lokys
nuna fyrir nokkrum dögum síðan þá til Hafnafjarðar togari sem heitir Lokys og er togarinn skráður  í Litháen

Reyndar þó að togarinn sé skráður í Litháen þá er útgerðaraðili Íslenskur, Iceland Seas, sem að Óttar Yngason á.

Á lokys eru tveir skipstjórar sem skipta með sér túrum, þeir Páll Kristjánsson og Petur Sigurd Petersen frá Færeyjum.

 Löng sigling
Það sem vekur mesta athygli við það að togarinn kom til Hafnarfjarðar er hversu langt þeir silgtu til að landa aflanumi 

en togarinn var við veiðar lengst norður í Barentshafi og togarinn lauk veiðum þann 28 október og þá tók við tæplega 6  daga sigling til 

Hafnarfjarðar með aflann sem var að uppistöðu rækja.

Togarinn kom með alls 367 tonna afla og af þeim afla þá var 235 tonn af rækju

87 tonn af þorski og 39 tonn af skráplúru

Lokys Mynd Magnar Lyngstad

Trakkið af Lokys, andi langt silgt, tekið af AIS kerfinu hjá Greenfish