Margrét GK og Stapafell SH í blíðunni í dag 18.maí

heldur betur sem að í dag 18.maí var góður dagur allavega gagnvart veðrinu,


hitabylgja og fólk um allt að spóka sig um í sólinni.

spegilsléttur sjór og þannig var veðrið þegar að dragnótabátarnir, Aðalbjörg RE, Stapafell SH og Margrét GK fóru á sjóinn þessari blíðu,

allir þrír bátarnir voru á veiðum við Sandvík og á Hafnarleirnum.

ég skellti mér niður á bryggju til að mynda Stapafell SH og Margréti GK, en náði ekki Aðalbjörgu RE , 

Þeir voru á svipuðum tíma að innsiglingarbaujunni í Sandgerði, en áhöfnin á Stapafelli SH var ennþá í aðgerð og því lá báturinn 

utan við baujuna og því fór að Margrét GK sem var á eftir Stapafelli SH kom á undan til Sandgerðis

aflinn hjá Margréti GK var um 6 tonn sem fékkst í þremur köstum, og þar fékk báturinn um 2 tonn í fyrsta kastinu sínu,

Stapafell SH var með um 10 tonn sem fékkst í 5 köstum, og hjá báðum bátunum þá var uppistaðan koli, nokkrar tegundir af kola,

Aðalbjörg RE var með um 11,5 tonn,

Aflinn hjá bæði Margréti GK og Stapafelli SH fer allur á markað og voru bæði Ástgeir skipstjóri á Margréti GK og Elli Bjössi skipstjóri á 

Stapafelli SH ansi sáttir við daginn, því að verð á fiskmörkuðum er mjög gott núna, og kolinn að fara á allt að 500 krónur kílóið.

Læt nokkrar myndir fylgja með hérna

og á fyrstu myndinni þá sést þegar að Margrét GK er í innsiglingarrennunni og í fjarska sést í Stapafell SH í aðgerð utan við baujuna

þess má geta að Margrét GK  mætti Margréti GK.   en þarna er verið að tala um Margréti GK dragnótabátinn sem var á leið 

í land, og Margréti GK 33, línubátinn sem var á leið til veiða út við Stafnes







Myndir Gísli Reynisson 

Ný síða í smíðum og allur stuðningur vel þeginn
kveðja Gísli R
hérna er upplýsingar
kt. 200875-3709
bók 0142-15-380889