Metafli hjá Steinunni SH,2020


Þessi vertíð 2020 er orðin ansi góð, og mjög margar fréttir hafa komið hérna á Aflafrettir um mokveiði og má segja um allt land,

veiði dragnótabátanna hefur verið mjög góð undanfarin og bæði frá Sandgerði og Snæfellsnesinu,

Dragnótabáturinn Steinunn SH lenti í rosalegu moki núna 9 mars.

þeir voru að veiðum skammt útfrá Rifi og Hellissandi,

tókum aðeins 4 köst 

Í fyrstu tveimur köstunum þá voru um 14 tonn.

í þriðja kastinu þá var ansi gott eða 30 tonn.

enn í því fjóðra og síðasta þá voru 40 tonn í trollinu,

Steinunn SH kom til  hafnar drekkhlaðinn og minnti um margt á síldarbátanna sem voru að svipaðari stærð og Steinun SH

en báturinn kom með 84,2 tonn miðað við tölur á vigt.

eftir á endurvigta aflann.

engu að síður er þetta hrikalega mikill afli og hefur aldrei áður Steinunn SH komið með jafn mikinn afla í land í einni ferð og í þessum róðri,

Þess má geta að Steinunn SH er með nokkuð góðan kvóta en í svona mokveiði þá má búast við  því að þeir taki því rólega 

í mars því vanalega hefur áhöfnin treynt kvótann fram til lokadags sem er 11.maí.  eftir það þá fer báturinn í slipp í Njarðvík,

metafli hjá Steinunni SH og spurning hvort þetta sé mesti afli sem dragnótabátur hefur náð á einum degi,  Aflafrettir geta ekki 

alveg svarað þeirri spurningu því það þarf að skoða það má nánar


Vel hlaðinn Steinunn SH.  takið eftir sjómanninum sem er fremst til hægri. ansi flott merkið hans






Myndir Alfons Finnson