Mikið tjón á Hannesi Hafstein
Þessi blessaða veðrátta núna í janúar á sér engann líkan. endalausar brælur og í það minnsta á Suðurnesjunum þá hafa bátarnir
lítið sem ekkert komist á sjóin,
Feikilegt óveður
núna í dag 25.janúar þá var feikilegt óveður af Suðvestri og þá gengur vindurinn og aldan beint á ströndina frá Reykjanesi og að
Garðskagavita. þar er Sandgerði og á haflóði í dag þá var mikil hreyfing í höfninni.
Hannes Hafstein
Björgunarskipið Hannes Hafstein sem að Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði rekur lá við flotbryggju í Sandgerðishöfn
og vegna gríðarlegt vinds þá barðist báturinn lagðist báturinn svo til utan og yfir bryggjuna á meðan að flotbryggjan
varð á mikilli hreyfingu. og í framhaldinu af því þá kom mjög stórt gat á skrokk bátsins og sjór komst inn í bátinn.
Allir í Útkalli
Allir meðlimir Sigurvonar í Sandgerði voru í ÚTkalli þegar þetta gerðist og var því enginn á svæðinu til þess að
fylgjast með bátnum og sömuleiðis var enginn hafnarvörður á svæðinu til að fylgjst með bátunum.
Heimildamaður Aflafretta sagði í samtali að Sigurvon væri að borga ansi há hafnargjöld af bátnum, og í svona óveðri
þá gerði hann ráð fyrir að starfsmaður á vegum hafnarinnar hefði verið á vaktinni meðan mesta óveðrið gekk yfir,
Hannes Hafstein mun fara í slipp í Njarðvik enn áður enn það gerist þá mun Köfunarþjónusta Sigurðar setja plötu
yfir svo hægt sé að sigla bátnum til Njarðvíkur
Enginn bátur
Þetta tjón gerir það að verkum að enginn björungarbátur verður tiltækur á þessum svæði sem er utan við Sandgerði enn mjög stór
floti er þar á veiðum oft á tíðum. Sigurvon á reyndar björgunarbátinn Þorstein en hann er búinn að vera bilaður enn varahlutir
eru komnir í þann bát og verður sett núna allt á fullt að koma honum í gang og á flot því mjög slæmt er að hafa engann
björgunarbát á þessu svæði.
Styrkur
Sigurvon er með svokallað landsbjargartrygginu enn hún bæti ekki þetta tjón og er því tjónið að stórum hluta
tjóns Sigurvonar.
Þar sem þetta tjón heggur ansi stórt skarð hjá Sigurvoni þá set ég hérna fram reikningsnúmer til þess að styðja við bakið
á Sigurvon í þessum hremmingum sem þeir lentu í
kt 521078-0309 bók 0147-26-100705
Tjónið á Hannesi Hafstein
Þorsteinn hinn björgunarbátur Sigurvonar í Sandgerði