Mokveiði hjá Barðanum RE 243


Ufsinn er ansi glettóttur fiskur.  stundum fiskast vel á hann enn stundum er mjög erfitt að veiða h ann,

þeir netabátar sem hafa lagt sig í að veiða hann hafa stundum hitt á  hann og þá er bara mokveiði,

Í Sandgerði hafa margir bátar stundað ufsaveiðar bæði í netin og færin og eru þá á veiðum í kringum Eldey.

einn af þeim bátum sem hitti vel í ufsann var Barðinn RE 243 og erum við að skoða núna 1984.

Þessi bátur lagði upp hjá Nirði hf í Sandgerði og mokveiddi í mars.

Því aflinn hjá Barðanum RE var alls 548,5 tonn í 22 róðrum og eins og sést á aflatölunum að neðan þá var mest 51,1 tonn í einni löndun

það má geta þess að af þessum afla þá var ufsinn um 340 tonn.



dagur Afli
2 28.4
5 26.1
6 30.4
7 28.3
8 23.0
9 5.9
12 46.3
13 25.8
14 12.1
15 14.1
16 13.7
17 33.4
19 15.7
20 33.1
21 20.0
22 11.2
24 26.1
26 48.1
27 51.1
28 14.2
30 20.5
31 21.0

Ef við skoðum þetta á viku þá lítur þetta svona út

vika 1. frá 1 til 3 mars.  afli 28,4 tonn í einni löndun

vika 2 frá 4 til 10 mars.  afli 113,7 tonní 5 róðrum 

vika 3 frá 11 til 17 mars.  afli 133,3 tonní 5 róðrum og mest 46,3 tonn

Vika 4. frá 18 til 24 mars.  afli 106,1 tonn í 5 róðrum 

Vika 5 frá 25 til 31 mars.  afli alls 154,9 tonní 5 róðrum .  risavika.  og þarna fékk báturinn 99 tonn ´´i aðeins 2 róðrum 

eins og sést þá var þetta virkilega flottur mánuður hjá Barðanum RE í mars 1984 í Sandgerði 


ÞEssi bátur strandaði svo við Dritvík á Snæfellsnesi í mars árið 1987 og mannbjörg varð þegar að þyrla landhelgisgæslunnar bjargaði áhöfn bátsins 9 manns.

Barðinn GK áður Barðinn RE Mynd Hafþór Hreiðarsson