Mokveiði hjá Jóni Finnsyni GK í apríl árið 1961
ég er ennþá að vinna í að skrifa niður tölur frá árinu 1961
og miðað við tölurnar sem ég hef þá er nokkuð ljóst að vertíðin árið 1961 var feikilega góð.
núna árið 2026 er apríl svo til að mestu leyti ónýtur því að það er hrygningarstopp, en á þessum árum frá 1940 og fram yfir 1980
Apríl ekkert stopp
þá var ekkert stopp í apríl, og alltaf ár eftir ár þá var mars og apríl mánuður stærstu aflamánuðirnir,
Apríl mánuður árið 1961 var feikilega góður mánuður og ansi margir bátar voru með yfir 400 tonna afla
í netin í apríl árið 1961
en einn bátur stóð þar fremstur í flokki
það var eikarbáturinn Jón Finnson GK sem var um 70 tonna eikarbátur og var þessi vertíð 1961
síðasta vertíðin sem þessi bátur var gerður út, því að í júlí árið 1962 þá kom stálbátur sem hét Jón Finnson GK
Síðan kom nýr bátur 1962
og sá bátur varð mikið aflaskip með skipaskrárnúmerið 124, hét meðal annars Gaukur GK og Tjaldanes GK.
Eikarbáturinn sem réri á vertíðinni 1961 fékk síðan nafnið Jóhannes Jónsson KE og hélt áfram útgerð frá Sandgerði og KEflavik
eins og Jón Finnson GK gerði.
Vertíðin 1961 var feikilega góð hjá þessum 70 tonna eikarbáti sem hét Jón Finnson GK
Vertíðaraflinn hjá bátnum var yfir 900 tonn sem að langmestu leyti var tekin í net og apríl mánuður var þar mjög stór
Mokveiðin í Apríl árið 1961
því að í apríl árið 1961 þá veiddi Jón Finnson GK alls 640,1 tonn í 28 róðrum, og það gerir tæp 23 tonn í róðri
stærsta löndun bátsins var 42,8 tonn.
í fyrri hluta af apríl þá landaði Jón Finnson GK 309,1 tonni í 14 róðrum og það er um 22 tonn í róðri
seinni hlutinn af apríl þá var báturinn með 331 tonn líka í 14 róðrum og það gerir tæp 24 tonn í róðri.
Allur aflinn af bátnuim var unnin í fiskvinnslu í Garðinum sem útgerðin átti sem gerði út bátinn
og landaði báturinn að mestu í Sandgerði og líka í Keflavík.
Það má geta að Jón Finnson GK var ekki stærsti báturinn sem réri í apríl árið 1961 enn varð aflahæstur
allra báta í apríl, og er það ansi magnað af ekki stærri báti.
Myndin hérna að neðan er af bátnum koma með fullfermi af síld, en hann hefur líklega verið einhvern veginn svona með tæp 43 tonn
af þorski í bátnum í apríl árið 1961

Jón Finnson GK mynd Guðjón Bjarnason