Mokveiði hjá Lilju SH eftir að hrygningarstoppinu lauk

Núna er lokalistinn fyrir bátanna að 21 BT í apríl


kominn hérna á aflafrettir

og á þeim lista þá kemur í ljós að aðeins þrír bátar voru með yfir 100 tonna afla 

Lilja SH
og á toppnum var Lilja SH sem heldur betur stakka alla hina bátanna af

því að Lilja SH endaði með tæplega 186 tonna afla í 13 róðrum og það gerir um 

Mokveiði eftir stoppið
eftir að hrygningarstoppinu lauk þá var tíðarfarið gott og Emil Freyr Emilsson skipstjóri á Lilju SH

fór í  sjö róðra á sjö dögum á Lilju SH og fór allra róðranna á Flákann og mokveiddi í þeim öllu

nema reyndar í síðasta róðrinu en þá var veður frekar slæmt og fór hann þá nær landi

7 róðrar 103 tonna afli
í þessum sjö  róðrum þá  landaði Lilja SH alls 103 tonnum  og það gerir 14,7 tonn í róðri að meðaltali

Síðasti róðurinn hjá Lilju SH í apríl var rúm 8 tonn og ef sá róður er tekinn í burtu.

þá var aflinn 94,6 tonn í 6 róðrum og það gerir meðaafla uppá 15.8 tonn í róðri

Emil var með um 12 til 13 þúsund króka  í róðri

og miðað við bala þá er það að meðaltali um 29 bala í róðri og er því afli á bala miðað við 7 róðra.

507 kíló, og miðað við 6 róðra ( 94,6 tonnin) þá er afli á bala um 544 kíló

semsé algjör mokveiði hjá Lilju SF eftir að stoppinu lauk,

 Lilja SH markaðsbátur
Lilja SH er einn af fáum bátum sem landar öllum sínum afla á fiskmarkaði

og því má kalla Lilju SH sem markaðsbát, og meðalverð í apríl var ansi gott eða á bilinuim 650 til 700 krónur

og var því aflaverðmætið  hjá Lilju í Apríl um 120 milljónir króna

og þar af var aflaverðmæti fyrir þessa mokveiði eftir að stoppinu lauk um 70 milljónir króna

Lilja SH mynd Alfons Finnsson
Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisso