Mokveiði hjá Mána II ÁR ,2020
Þær bara ekki hætta fréttirnar af mokveiðinni. það er bara fiskur útum allt,
það var minnst á það í texta við lokalista bátanna yfir 21 BT að Máni II ÁR sem að Ragnar Emilsson er skipstjóri á
hafi sett met, því aflinn hjá Mána II ÁR fór yfir 100 tonn í febrúar og var febrúar einn besti mánuður Mána II ÁR frá upphafi,
en Ragnar slær ekki stöku við, því hann byrjar mars mánuð með látum svo um munar,
4.mars þá fór hann út á Selvogsbanka og var einn þar að veiðum
fór með alls 12 þúsund króka út en hann rær með stokka
og lenti heldur betur í mokveiði
því báturinn kom drekkhlaðinn í land og landað var úr bátnum 23,5 tonnum.
þetta er rosalegur afli, ef við reiknum miðað við balanna þá eru þetta um 29 bala
og það gerir um 810 kíló á bala,
það er MOK og það með stórum stöfum.
Máni II ÁR kom með allan aflan í land í einni ferð og verður að segjast að báturinn ber aflann ansi vel.
en Ragnar lét breyta Mána II ÁR nokkuð mikið fyrir nokkrum árum síðan og er báturinn er dag orðin eins og kallað er hörkubátur.
Máni II ÁR með fullfermi Myndir Guðni Berg Gíslason