Mokveiði í 18 net hjá Bergvík GK. ,2020


Þá daga sem hefur gefið á sjóinn þá hefur netaveiðin verið mjög góð hjá bátunum.,

Á Suðurnesjunum þá eru allir netabátarnir þar að róa frá Sandgerði og hefur verið mjög góð veiði hjá þeim þegar þeir hafa komist á sjóinn,

einn af þeim bátum sem gerðu ansi góðan róður um daginn vekur nokkra athygli,

því að Bergvík GK fór út með aðeins 18 net í 2 trossum og fékk í þær trossur alls tæp 5 tonn,

það sem vekur kanski hvað mesta athygli við þann róður

var að aðeins einn maður er á bátnum.

Hafþór Örn skipstjóri rær á Bergvík GK og hann hefur verið einn að róa á bátnum,

hann fór einn á sjóinn á Bergvík GK  með sín 18 net og bjóst ekki við miklu, enn lenti í mokveiði 

það má geta þess að sá sem skrifar þessi orð var á bryggjunni í Sandgerði þegar að Hafþór kom í land

og smellti sér á löndunarkranann og hífði upp úr bátnum, verður nú að hjálpa til þegar svona kemur uppá,


Mynd gísli Reynisson