Netakóngur Íslands Grímsnes GK kominn af stað.

Það eru ekki margir bátar eftir í útgerð á íslandi í dag sem eru aðeins með 2 stafi í sínu skipaskrárnúmeri,


þeir voru 2 um tíma.  ÍSborg ÍS sem var með númerið 78 og Grímsnes GK sem er með númerið 89,

Núna er Grímsnes GK einn eftir.

Grímsnes GK er sá bátur sem lengst hefur stundað netaveiðar við Íslandsstrendur og má því með réttu kalla bátinn

netakóng íslands.

En netaveiðarnar hefur hann stundað lengi undir þessu nafni Grímsnes GK og þar á undan svo til öll árin sem bátuirnn hét Happasæll KE 

hann lenti í mjög alvarlegri vélarbilun  snemma í febrúar núna árið 2020, og var báturinn frá veiðum alla síðustu vertíð og hefur ekkert komist á sjóinn

fyrr enn núna

því núna hefur þetta mikla og færsæla aflaskip farið af stað aftur, og Sigvaldi Hólmgrímsson er skipstjóri á bátnum,

hann kallar bátinn Grímsa og er stefnan sett á ufsann.

Báturinn átti ansi gott ufsa ár um haustið 2018 en þá var bátuirnn að meðaltali með um 240 tonn á mánuði allt haustið og endaði sem aflahæsti netabáturinn 

á íslandi árið 2018.

Margir sjómenn hafa verið á þessum báti, sem var lengi Happasæll KE og í samtölum mínum við sjómenn þá heyri maður alltaf það sama

hversu góður bátur Grímsnes GK er og margir hafa taugar til þessa báts og því er það örugglega gleðiefni að þessi netakóngur ÍSlands sé aftur kominn af stað


Grímsnes GK mynd Jón KR