Nýr bátur frá Trefjum með yfir 1000 tonna ,2020kvóta.

Trefjar voru að afhenda nýjan bát

Gríðarlega mikill kvóti er á þessum nýja báti,
því alls er kvótinn á bátnum 1043 tonn
af því þá er ýsa 557 tonn
ufsi 375 tonn
og þorskur 40 tonn
auk þess 72 tonn af makríl
Útgerðarfélagið RM Kystfiske AS fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni standa feðgarnir Roy Skår og Roy-Morten Skår.
Roy-Morten verður skipstjóri á bátnum, faðir hans Roy hefur verið lengi í útgerð stærri skipa í Noregi
 
Nýji báturinn heitir Skårungen. Báturinn er 11metrar á lengd og mælist 11brúttótonn. 
 
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hö tengd frístandandi ZF325IV gír.
Rafstöð er af gerðinni Nogva / Nanni.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Olex.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða.  Netabúnaður kemur frá Lorentzen í Noregi.
 
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
 
Rými er fyrir 15stk 380lítra kör í lest.  Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.
 
Bátnum er kominn til Noregs hefur þegar hafið veiðar.




Mynd Trefjar .is