Nýr bátur til noregs...númer 2,2016

Bátsmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til
bæjarins Nervei í Finnmörku í Noregi.
Kaupandi bátsins er Per Birger Persen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.


Báturinn hefur hlotið nafnið Karl-Torgeir.  Báturinn mælist 11brúttótonn. 
Karl-Torgeir er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSC8.3 490hp tengd ZF V-gír.  Báturinn er
útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu
bátsins.  Báturinn er útbúinn til neta og gildruveiða.
Búnaður til netaveiða kemur frá Rapp í Noregi.  Krani er frá TMP.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í lest.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla og
salerni með sturtu.  Borðsalur er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk
eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.