Nýr Indriði Kristins BA



Útgerðarfélagið Þórsberg ehf á Tálknafirði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 40BB beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Framkvæmdastjóri Þórsbergs er Guðjón Indriðason.

Indriði var hannaður í samstarfi við Ráðgarð ehf.

 

Nýji báturinn heitir Indriði Kristins BA 751. Báturinn er 12.5metrar á lengd, 6.5metra breiður  og mælist 30brúttótonn.  Báturinn leysir af hólmi eldri bát með sama nafni. 

Skipstjórar á bátnum eru Magnús og Indriði Guðjónssynir.

 

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158TI 600hö (15L) tengd ZF W350 gír.         

Tvær Ljósavelar eru í bátnum af gerðinni Doosan 96kW með 50kW Rafal.                                         

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni frá Sónar ehf.                                           

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða.  Beitningavél, rekkakerfi og línuspil er frá Mustad í Noregi.

Búnaður á dekki er frá Lavango og Stálorku.                                                                               

Ísvél og forkælir er frá Kælingu ehf.

Löndunarkrani á er af gerðinni TMP frá Ásafli ehf.

 

Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Andveltigemir er í bátnum.

 

Rými er fyrir allt að 54stk 460lítra kör í lest.  Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla fyrir 8manns.  Stór borðsalur.  Salerni/sturta.  Þvottavel og þurrkari.  Svefnpláss er fyrir átta í lúkar í 4 aðskyldum klefum.

Fullbúið eldhús er um borð með öllum nauðsynlegum búnaði.  S.s. eldavél, bakarofni, örbylgjuofn og ísskáp.       

Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.



Indriði Kristins BA mynd frá Trefjar.is






Myndir Gísli Reynisson