Nýr Páll Jónsson GK ,2020

Mikil endurnýjun hefur verið í gangi hjá Vísi ehf í Grindavík.


endurbættir Fjölnir GK og Sighvatur GK eru komnir í flotann hjá Vísi ehf

og núna er fyrsta nýsmíðin í rúmlega 50 ára sögu Vísis.

nýi báturinn heitir Páll Jónsson GK og kemur í staðin fyrir núverandi Pál Jónsson GK 

sem er búinn að þjóna Vísi ehf síðan árið 2001.

Gamli Páll Jónsson GK var lengst af loðnubátur en  hætti þeim veiðum þegar að Vísir ehf keypti bátinn,

Nýi báturinn er 45 metra langur  og 10,5 metra breiður,

lestin í bátnum tekur 420 kör miðað við 300 lítra kör og er það um 130 tonn af fiski.  

Gamli Páll Jónsson GK er 43 metra langur og 7 metra breiður.,

14 eins manns klefar eru í nýja bátnum  og er það mikil munur á gamla bátnum en þar eru klefarnir orðnir um 50 ára gamlir.

Nýi Páll Jónsson GK kemur með öllum fiskvinnslubúnaði og einungis er eftir að fínstillingar væru eftir og því ætti báturinn að komast á veiðar innan tíðar.

Aflafrettir óska áhöfn og útgerð til hamingju með nýjan bát,
















Myndi Gísli reynisson