Nýr strandveiðibátur Research GK

Trefjar voru að afhenda nýjan bát og hann vekur nokkra athygli því að báturinn 


er fyrsti báturinn í mjög mörg ár sem er smíðaður sem er undir 10 tonnum og þessi er hafður til veiðar á strandveiða,

sem vekur líka nokkra athygli. 



Alexander John Polson útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Alex verður sjálfur skipstjóri á bátnum.

 

Nýji báturinn heitir Research. Báturinn er 9.6m metrar á lengd og mælist 8.5brúttótonn. 

Það má til gamans geta þess að Alexander var áður einn af eigendum útgerðar Research sem stundar uppsjávarveiðar á Hjaltlandseyjum.

 

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N67 420hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn verður á Strandveiðum.  Handfærarúllur eru frá DNG.

Lest bátsins rúmar 12stk 380lítra fiskikör. 

 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Í lúkar eldunaraðstaða og svefnpláss er fyrir tvo. í lúkar.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.



mynd trefjar.is