Nýtt vinnslukerfi hjá Loðnuvinnslunni frá Skaganum 3X




Nýtt vinnslukerfi Loðnuvinnslunnar hf.(LVF) eykur framleiðslugetu um 70%

Loðnuvinnslan og Skaginn 3X hafa undirritað samning um nýtt uppsjávarvinnslukerfi fyrir
starfsemi fyrirtækisins á Fáskrúðsfirði.


Frá vinstri: Þorri Magnússon - framleiðslustjóri (LVF), Friðrik Mar Guðmundsson -
framkvæmdastjóri (LVF), Ingvar Vilhjálmsson - svæðissölustjóri (Skaginn 3X), Steinþór Pétursson
- skrifstofustjóri (LVF), Einar Brandsson - söluhönnuður (Skaginn 3X), Rúnar Björn Reynisson -
vélahönnuður (Skaginn 3X).


Nýlega undirrituðu LVF og Skaginn 3X samning um nýtt vinnslukerfi LVF sem auka mun

sjálfvirkni og vinnslugetu. Stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á

sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. Nýja kerfið er hannað til að

framleiða hágæða vöru á sem hagkvæmastan hátt.

Frystihús LVF á Fáskrúðsfirði er sérhæft til vinnslu á uppsjávarfiski, loðnu, síld og makríl. Loðnan

er heilfryst á markaði í Austur-Evrópu og Asíu en einnig eru hrogn unnin fyrir sömu markaði.


Tímasetningin skiptir höfuðmáli

Þar sem uppsjávarvinnsla er háð viðkvæmum ytri þáttum eins og árstíðabundinni auðlind er

mikilvægt að ná að nýta hana á réttum tíma og með réttum aðferðum. Tæknilausnir Skagans 3X

eru því hannaðar til að viðhalda gæðum vörunnar og ná með því hámarksafrakstri í vinnslu. Með

þessum endurbótum verður fyrirtækið mun betur í stakk búið til þess að nýta auðlindina sem

best á næstu vertíðum.

Náið samstarf

„Það skiptir miklu máli að geta unnið svona náið með hönnuðum Skagans 3X eins og við höfum

gert í þessu verkefni,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri LVF. „Sérfræðiþekking

þeirra og reynsla okkar hefur skilað sér í lausn sem mun bæði auka sjálfvirkni og bæta

framleiðslugetuna í uppsjávarfrystingunni hjá okkur.“


Aukin Sjálfvirkni

Uppsjávarkerfin frá Skaganum 3X eru afar skilvirk og hefur tæknin þjónað nokkrum stærstu

uppsjávarvinnslum í heimi. Nýja kerfið sem sett verður upp hjá LVF inniheldur pokakerfi, nýja

plötufrysta sem fara afar vel með vöruna og sjálfvirkt brettakerfi. Búnaðurinn verður tengdur

bæði vélum sem fyrir eru og nýjum búnaði frá öðrum framleiðendum, þar með töldum þjörkum

sem auka enn sjálfvirknina í frystihúsinu.

Sérfræðingar í heildarkerfum í uppsjávarvinnslu

Skaginn 3X hefur mikla reynslu í hönnun og uppsetningu á stórum heildarkerfum fyrir

uppsjávarvinnslu. Það tók því ekki langan tíma fyrir þrjá sérfræðinga fyrirtækisins að hanna

kerfið fyrir LVF. Þeir mættu austur, teiknuðu kerfið upp á staðnum og tæpum mánuði seinna var

samningur undirritaður.


Það tók þrjá sérfræðinga aðeins tæpan mánuð að skilgreina og hanna nýtt kerfi fyrir
uppsjávarvinnslu LVF á Íslandi.

Vinna hratt til að mæta þörfum viðskiptavinarins

„Við gripum boltann og unnum hratt og vel með Fáskrúðsfirðingum. Við höfum sett upp kerfi hjá

LVF áður og það er því ánægjulegt að geta unnið með þeim áfram og boðið lausnir sem henta

þeirra þörfum,“ segir Ingvar Vilhjálmsson - svæðissölustjóri Skagans 3X „LVF teymið var mjög vel

undirbúið þannig að það var auðvelt og fljótlegt fyrir okkur að hanna kerfið “