Ólafur Magnússon EA 250 árið 1976

ætla að fara með ykkur aftur í ferðalag.


Núna förum við aftur til ársins 1976, og við skoðum þar bát sem átti sér langa og farsæla aflasögu hérna við landið

þetta er báturinn Ólafur Magnússon EA 250 sem kom nýr til landsins árið 1960, hann átti sér systubát hérna á landinu

og var það Auðunn GK frá Hafnarfirði, en eini munurinn á þeim var að Ólafur Magnússon EA var aðeins lengri enn Auðunn GK.

Saga bátsins var sú að hann var gerður út frá Akureyri frá 1960 til 1983 undir þessu nafni, en var þá seldur til 

Njarðar ehf sem var dótturfyrirtæki KEA á Akureyri, þá fékk báturinn nafnið Sólfell EA og var báturinn með því nafni til 1992 þegar  hann var seldur til Noregs

í Noregi var bátnum breytt í brunnbát og var notaður sem slíkur alveg til 2018.

Enn annars við skulum skoða árið 1977, en báturinn byrjaði árið á loðnuveiðum og fór síðan yfir á trollið, en bátnum gekk alltaf mjög vel á trollinu,

 Janúar.
 Fyrsta löndun bátsins var á Vopnafirði í lok janúar og kom þá báturinn með 168 tonn af loðnu til Vopnafjarðar.
 

 Febrúar.

 Báturinn var á loðnuveiðum og landaði öllum sínuim afla fyrir austan , landaði í alls fimm skipti og var með 937 tonna afla og það gerir 187 tonn í löndun.

Ólafur Magnússon EA landaði í febrúar , á Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Seyðisfirði og Breiðdalsvík,  stærsta löndunin var 200 tonn á Fáskrúðsfirði.

 MArs.
 Báturinn elti loðnuna suður og landaði samtals 996 tonnum í sex löndunum og það gerir 166 tonn í löndun.

Báturinn landaði ansi víða í mars, landaði tvisvar í Reykjavík, landaði tvisvar í Bolungarvík samtals 366 tonnum þar 
kom til Keflavíkur með 187 tonn og landaði síðan í loðnubræðsluskipið Nordglobal sem lá þá inni á Hvalfirði

en þangað kom Ólafur Magnússon EA með 147 tonna af loðnu.

Eftir loðnuveiðar þá skipti báturinn yfir á troll og náði einni löndun á Dalvík undir lok Mars og kom með 28,3 tonn í land þangað

 Apríl.
 Meðan að Ólafur Magnússon EA var á trolli þá landaði hann ansi oft á Seyðisifrði og í apríl þá einmitt landaði báturinn þar

hann landaði aðeins tvisvar en var samt með 174 tonna afla og mest 87 tonn í einni löndun, sem er nú ansi mikill afli

 Maí

 Maí mánuður var mjög stór hjá bátnum því að hann var áfram á veiðum fyrir austan landið og landaði fyrst 64 tonnum á

Neskaupstað en síðan á Seyðisfirði og var alls með 275 tonna afla í aðeins 4 róðrum , og það gerir 69 tonn í róðri,

mesti afli í einni löndun var 104,6 tonn sem  er nú fullfermi hjá bátnum 

 Júni
 Báturinn var sem fyrr á Seyðisfirði og landaði þar 158 tonnum í þremur róðrum

 Júlí

Áfram  þá var Ólafur Magnússon EA að landa á Seyðisfirði og var núna með 98 tonn í þremur róðrum.

en það má geta þess að allur aflinn sem báturinn landaði á Seyðisfirði var unnin í frystihúsinu á Seyðisfirði

 Ágúst

Báturinn var á fram á Seyðisfirði og var með 93 tonn í 2 róðrum og sem fyrr á trollinu

 September

 Þessi mánuður var nokkuð góður en báturinn var með 172 tonn í aðeins tveimur róðrum og mest 83 tonn í einni löndun, landað á Seyðisfirði

 Október

 og sem fyrr þá var báturinn að landa á Seyðisfirði og var núna með 83 tonn í 2 rórðum 

 Nóvember

 Nóvember var síðasti mánuðurinn sem báturinn landaði afla árið 1976, og var hann með 39 tonn í 2 róðrum 

báturinn fór síðan í slipp á Akureyri.

 Heildarafli

 Árið 1976 var ansi gott hjá bátnuim því að heildaraflinn 

var 3299 tonn og af þeim afla þá var loðna 2179 tonn

bolfiskaflinn var 1120 tonn sem fékkst í aðeins 21 löndun , sem gerir 53 tonn í róðri, og öllum bolfiskaflanum 

landað á Seyðisfirði nema um 90 tonnum sem var landað á Dalvík og Neskaupstað

Ólafur Magnússon EA mynd Hreiðar Valtýrsson

Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson