Þorsteinn Gíslason GK 2 árið 1994

Bátar komast af og til í aðra fjölmiðla en  hérna á Aflafrettir.is og iðulega þá útaf einhverju veseni.


einn af þeim bátum er 288.  Jökull SK, sem er búinn að liggja við bryggju í Hafnarfirði núna í um 12, ár og 

hefur á þessum árum sokkið í þrjú skipti, og jú kemst þá í fjölmiðlanna.

annars þá á þessi bátur sér mjög farsæla útgerðarsögu, og þó svo að báturinn sé smíðaður árið 1959 þá eru ekki mörg nöfn sem að báturinn hefur borið.

báturinn hét fyrst Árni Geir KE 21 og va rmeð því nafni til 1970, þegar að báturinn fékk nafnið Þorsteinn Gíslason KE 31.

árið 1975 var þá báturinn seldur til Grindavíkur og þá var nafnið óbreytt nema, Þorsteinn Gíslason GK 2.

og með þessu nafni þá var báturinn gerður út í Grindavík í alls 33 ár, og var með nafnið Þorsteinn Gíslason í alls 38 ár.

En við skulum fara í smá ferðalag aftur í tímann, við förum ekki það langt.

förum aftur til ársins 1994, 32 ár aftur í tímann og skoðum hvernig bátnum gekk .

 Janúar.

 Báturinn hóf línuveiðar frá Grindavík seint í janúar og fór aðeins í fjóra róðra, og var með 11,3 tonn afla.

 Febrúar.

Báturinn var á línuveiðum fram til  í lok febrúar, en fór ekki í marga róðra, var með 31,9 tonn í 7 róðrum, öllu landað í Grindavík.

 Mars.
 
Báturinn skipti yfir á netin og veiðin var svona þokkaleg, ekkert mok, heildarafli í mars 116 tonn í 23 róðrum, eða rúm 5 tonn í róðri,

mest 12,8 tonn í einni löndun.

 Apríl.

 Frekar rólegur mánuður, Þorsteinn Gíslason GK var á netum og landaði 53,5 tonnum í 10 róðrum og mest 10,6 tonn í einni löndun.

 Maí að 11.maí, vertíðarlok

fram til lokadags vertíðar, sem er 11.maí þá var veiðin hjá bátnum mjög góð.  

Þorsteinn Gíslason GK landaði alls 55,7 tonnum í aðeins 8 róðrum, eða tæp 7 tonn í róðri.

Vertíðarafli var ekkert sértakur, var í heildina 268,4 tonn í 52 róðrum

 Maí, eftir 11.maí og út maí.

Báturinn réri á netum til um miðjan maí, og fór síðan yfir á humarveiðar, heildarafli í maí 50,8 tonn í 8 róðrum og af þeim afla þá var humar 5 tonn miðað við óslægt

en tveir síðustu róðrarnir hjá bátnum í maí voru á humri

 Júní.

 Þorsteinn Gíslason GK var áfram á humar í júní og veiðin var góð, var aflinn alls 44,4 tonn í 6 róðrum, eða 7,3 tonn í róðri

og af þessum afla þá var humar 10,6 tonn, miðað við óslægt.

Júlí.

 Áfram var báturinn á humri, og veiðar gengu vel, var aflinn  hjá bátnum 31,3 tonní 6 róðrum og af þeim afla þá var humar 10,3 tonn.

 Ágúst.

 Í ágúst þá skipti báturinn aftur um veiðarfæri, og fór yfir á rækjuveiðar og var þá að veiða rækju við Eldey, og gengu þær veiðar undir 

nafninu, Eldeyjarrækjan.  

Báturinn hóf veiðar frá Grindavík og var með 12,4 tonn í tveimur róðrum og þar af var rækja 10,9 tonn.

 September.

 Báturinn var á rækjuveiðum við Eldey og landaði núna í Sandgerði, en rækja sem báturinn veiddi var unnin í Sandgerði 

hjá Rækjuvinnslu Óskar Árnasonar í Sandgerði og gengu rækjuveiðar nokkuð vel,

landaði báturinn alls 43,2 tonnum í 8 róðrum og af þeim afla þá var rækja 33,7 tonn.

Október.

 Þorsteinn Gíslason GK hélt áfram á rækju og landaði í Sandgerði 10 tonnum af rækju í tveimur róðrum.

Báturinn fór síðan til Grindavíkur og hóf veiðar með línu, 

en það má geta þess að öll árin sem að báturinn var gerður út þá réri báturinn alltaf á balalínu þegar að báturinn var á línu.

línuveiðar gengu nokkuð vel, en báturinn landaði 57 tonn í 9 róðrum, öllu landað í Grindavík.

 Nóvember.

 Þorsteinn Gíslason GK var áfram á línuveiðum og gekk nokkuð vel, var með 58,9 tonní 12 rórðum og mest 9,6 tonn í einni löndun.

 Desember.

 Báturinn hélt áfram á línuveiðum og des var ágætur, var aflinn alls 48,6 tonn í 11 róðrum á línu og landað í Grindavík.

 Heildarafli.

 Óhætt er að segja að báturinn Þorsteinn Gíslason GK hafi verið hálfgert fjölveiðiskip, eða fjölveiðibátur, því að veiðarfærin sem að báturinn 

réri með árið 1994 voru alls fjögur,  Lína, Net, Humartroll og rækjutroll.

 Heildarafli bátsins var alls 614,8 tonn í 114 róðrum, 

og af þeim afla þá var humaraflinn tæp 26 tonn,

og rækjuaflinn var 54,6 tonn
Þorsteinn Gíslason GK mynd Tryggvi Sigurðsson

Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson