Pálina Þórunn GK 49,2020


Nesfiskur í Garðinum er búinn að vera að endurbæta bátaflotann sinn, t.d með nýju útliti á flotanum sínum og nýir bátar,

Gamla Hvanney SF sem heitir Sigurfari GK er byrjaður að róá dragnót og nýjasta viðbótin í flotanum hjá Nesfisk er togbáturinn Pálína Þórunn GK

þessi bátur hét þaður Steinunn SF og báturinn kom í fyrsta skipti til Sandgerðiis til löndunar um kvöldið 18.febrúar,

margmenni var á bryggjunni og meðal annars tóku Hafnarstjórinn og formaður Hafnarráðs í Sandgerði á móti bátnum 

og færðu áhöfn bátsins kræsingar til þess að borða.

að sjálfsögðu var ég mættur þar og pabbi minn líka sem myndaði líka,

Pálína Þórunn GK var með um 25 tonna afla og fór beint út aftur eftir löndun. 

Það má geta þess að þetta er í fyrsta skipti sem þessi bátur kemur til Hafnar til SAndgerðis síðan  hann var smíðaður

en á þó sterka tengingu til Sandgerðis því einn af skipstjórunum á Steinunni SF var Sævar Ólafsson frá Sandgerði.

Einn liður í þessu 

var að ég bjó til myndband af því þegar að báturinn kom inn í  höfnina og lagði að bryggju.  það er ekki langt rétt um 2 mín

 Það má horfa á myndbandið hérna,






Mynd gísli Reynisson 


Garðar Jónsson stýrimaður til vinstri og Snorri Snorrason skipstjóri í brúnni á Pálínu Þórunni GK




Myndir Reynir Sveinsson