Rækja árið 2026.listi númer 5

Listi númer 5

frá 1-1-2026 til 21-7-2026

Rækjuaflinn kominn í 1440 tonn 
núna í júlí eru aðeins Fjórir á rækjuveiðum, Ottó N Þorláksson VE var á rækjunni

en hann bilaði í enda júní og var dreginn til Siglufjarðar og er þar og bíður viðgerðar

Annars þá var góð veiði hjá þeim sem eru á rækjunni

Vestri BA með 94 tonn í 3 róðrum 

Sóley Sigurjóns GK 86 tonn í 4
Dala Rafn SI 56 tonn í 4

Pálína Þórunn GK 22 tonn í 2, en það má geta þess að Nesfisktogarnir Sóley Sigurjóns GK og Pálína Þórunn GK

voru með líka með töluvert mikið af fiski , sem var ekin suður til Sandgerðis og Garðs til vinnslu þar

Dala Rafn SI mynd Vigfús Markússon

Sæti áður Nafn Heildarafli Róðrar Mesti afli
1 1 Vestri BA 557.4 17 49.0
2 2 Sóley Sigurjóns GK 361.2 15 32.3
3 3 Dala Rafn SI 508 326.5 19 27.5
4 4 Pálína Þórunn GK 122.3 7 24.5
5 5 Ottó N Þorláksson VE 46.6 4 12.9
6 6 Torfi Björnsson ÍS 26.2 6 9.7