Ragnar Þorsteinsson ÍS með fullfermi af rækju, og mun meira.

Eins og þið hafið vafalaust tekið eftir  þá  hefur rækjuveiðin verið lítil núna árið 2020. aðalega úr ÍSafjarðardjúpinu og í arnarfirðunum,


 Minnsti báturinn
einn minnsti rækjubáturinn á Íslandi  er Ragnar Þorsteinsson ÍS ,  þessi bátur er aðeins um 21 tonn af stærð en er búinn að vera að róa 

á rækju í Arnarfirðinum í vetur og landað aflanum á Þingeyri, og þaðan er síðan aflanunm ekið í Kamp á ÍSafirði til vinnslu,

Fullfermi
Báturinn hefur ekki  farið í marga róðra aðeins 4 en landað 10,5 tonnnum úr því og síðasta löndun bátsins vakti nokkra athygli Aflafretta.

því að báturinn kom með fullfermi í land eða 4,4 tonn.

Aflafrettir slógu á þráðinn til Runólfs Georgs en hann er eigandinn  af bátnum og skipstjóri.

Sagði hann að þeir hefði fengið þennan afla í um 10 togum enn frekar vont veður var þegar þeir voru á veiðum og sést það meðal annars í myndbandi sem fylgir þessari frétt.

Var lestin í bátnum full af rækju auk þess sem að 2 kör voru á dekki full af rækju

Frekar óvenjulegt er að svona lítill bátur sé á rækjuveiðum og sagði Runólfur að ástæða þess væri að það er gerlegt að leigja rækju 

frekar en þorsk og ýsu og hægt að fá eitthvað útúr því.

Þeir sóttur reyndar um sérstækan byggðakvóta á Flateyri enn fengu það ekki.

 Gefast ekki upp
en það þýðir ekki að hann gefist upp, nei þvert á móti

því útgerðin keypti bátinn Andra BA af Andraútgerðinni enn þann bát átti Jón Páll Jakopsson sem er útí noregi núna og á þar bátinn Jakob

Mun báturinn fá nafnið Ragnar Þorsteinsson ÍS 600 og mun þá stunda dragnótaveiðar og rækjuveiðar.

Núverandi Ragnar Þorsteinsson ÍS verður seldur,

Hver er þessi Ragnar
Enn hver er þessi Ragnar Þorsteinsson ÍS sem báturinn er skírður í höfuðið á

jú Ásgeir Ragnar Þorsteinsson eins og hann hét var fæddur árið 1908 í Eyrardal í Álftafirði við Ísafjarðardjúp  og lést árið 1998.  hann var afi Runólfs sem á bátinn Ragnar Þorsteinsson ÍS

Ragnar þessi var sjómaður í um 22 ár og þar af skipstjóri í 13 ár til ársins 1943.   síðan söðlaði hann um sig og flutti á Höfðabrekku skammt við 

vík í mýrdal og var þar bóndi auk þess að vera í björgunarsveitinni þar,

Ragnar skrifaði margar bækur og þar á meðal ævisöguna Rist í Mar og mold sem fjallar um ævi  hans Ragnars.

Merkilegur maður og Runólfur stoltur að afa sínum

Þessi frétt átti bara að fjalla um þennan fullfermisafla 4,4 tonn enn endaði sem pistill um ungan mann Runólf sem lætur ekki mótlætið stoppa sig

heldur berst á móti straumnum og geri það með t.d kaupum á nýjum bát þar sem að Afi hans fylgist stoltur með.

Þess má geta að myndband var tekið úr þessum fullfermistúr og hægt 





Tekið um borð í Ragnar Þorsteinssyni í Arnarfirðinum.  til vinstri Þórir B Harðarson faðir Runólfs og Runólfur til hægri.  Myndina tók Daníel sem fer af og til með þeim 


Ragnar Þorsteinsson IS mynd vikari.is

Skjábrot úr myndbandinu