Risadagur hjá Adda Afa GK. ,2020
Eins og hefur komið fram hérna marg oft á aflafrettir þá er búið að vera mokveiði á línu og í netin utan við Sandgerði sem og víðar um landið,
Óskar skipstjóri á Adda Afa GK fór út með 32 bala í síðasta róðri og fór og lagði línuna utan við Stafnes, en þar höfðu bátarnir verið að fiska nokkuð vel.
Óskar og Unnar sem er að róa með honum bjuggust við góðri veiði en ekki þessi mikla ævintýri sem þeir lentu síðan í,
því þegar búið var að draga aðeins 19 bala í bátinn þá var allt orðið fullt og þurftu þeir að fara inn til Sandgerðis til þess að millilanda
uppúr bátnum þá komu um 8 tonn og það gerir um 421 kíló á bala,
aftur fóru þeir út til þess að draga þá 13 bala sem þeir áttu eftir í sjó.
og þegar þeim drætti voru um 4,4 tonn á þá bala. .
Alls var því dagurinn samtals 12,4 tonn á þessa 32 bala og gerir það um 389 kíló á bala.
uppistaðan var þorskur eða 11,3 tonn sem allur fór til vinnslu hjá Nýfiski í Sandgerði.
þetta er ekki í fyrsta skipti sem að Óskar á Adda Afa GK lendir í svona moki, betur um það síðar.
Myndin sem er af bátnum er frá því 2018. náðist ekki almennilega að mynda bátinn þegar hann kom í land með aflann.
Það má geta þess að nokkrir aðrir línubátar komu síðan og lögðu á svipuðum slóðum og Addi Afi GK fékk þennan mokafla, t.d Margrét GK og Kristján HF og mokveiddu þeir líka.
Mynd Gísli reynisson