Risadagur hjá Júlla og áhöfn á Sævík GK.,2020

Hérna til hliðar er frétt um risaveiði hjá Hafrafelli SU.


29.febrúar var ansi góður dagur hjá bátunum.

og nokkrir bátar þurftu að fara tvær ferðir til þess að ná að draga alla línuna inn,

einn af þeim var Sævík GK sem Vísir ehf á og gerir út,

Júlli skipstjóri fór út með 15 þúsund króka, það gerir um 36 bala,

eftir að hafa aðeins dregið 8 þúsund króka eða 19 bala þá var báturinn orðinn fullur af fiski og var farið inn til Grindavíkur til þess að milli landa

uppúr bátnum komu þá  15,2 tonn og það gerir um 800 kíló á bala.  það er rosalegur afli á bala 

aftur fór Júllí og til að draga restina af línunni 

og kom í land eftir að hafa dregið 7 þúsund króka eða 17 bala.

og á þá króka fékk báturinn  12,3 tonn og gerir það um 728 kíló á bala,

alls var þvi þessi risadagur hjá Sævík GK 27,6 tonn , og gerir það um 767 kíló á bala,

já þetta er mok og ekkert annað enn risamok


Sævík GK mynd Eyjólfur Vilbergsson