Risakolmunafarmur til Fáskrúðsfjarðar.,2020

Veiðar uppsjávarskipanna í færeyjum hafa gengið nokkuð vel núna frá áramótum.


flest skipanna þaðan hafa verið að veiða kolmuna og hafa landað nokkuð víða.  Irlandi, Noregi og heima í Færeyjum

ekki hafa mörg skip komið til ÍSlands með afla og í raun hafa engin skip frá Færeyjum komið til ÍSlands með afla,

þangað til núna fyrir nokkrum dögum síðan þegar að Gitte Henning 1 kom til Fáskrúðsfjarðar með risafarm af kolmuna

því alls var landað úr skipinu 3148 tonnum af kolmuna

og er þetta einn stærsti einstaki farmur sem hefur komið til Fáskrúðsfjarðar í einni löndun,

til samanburðar  þá má geta þess að Hoffell SU sem er gert út frá Fáskrúðsfirði þyrfti að fara í tvær veiðiferðir til þess að ná þessu

sama magni og Gitte Henning kom með í einni löndun 

Gitte Henning kom inn óvænt í Færeyska flotann en hann kemur í staðin fyrir  Tróndur í Götu en mjög alvarlega vélarbilun kom upp í skipinu þegar að 

gírinn í Tóndi á götu bilaði það mikið að séð var að skipið yrði frá veiðum í  mjög langan tíma, og því kom Gitte Henning inn í staðinn fyrir Trónd í Götu,


Þess má geta að eftir löndun á Fáskrúðsfirði þá silgdi Gitte Henning beint aftur til Færeyja


Gitte Henning 1 mynd Charlie Umphray