Risaróðurinn á Betu VE. Myndir. ,2017
já Aflafrettir eiga frábæra lesendur.
ég er staddur núna í þýskalandi enn get samt sinnt síðunni og þið lesendur góðir haldið áfram að lesa allt í klessu á henni,
já Kidda á Betu VE tókst að fiska Fúsa á Dögg SU í kaf og það á sama deginum,,.
Fékk ég þá sendar myndir af stærsta túr Kidda 17,9 tonn.
og það má geta þess að þessi túr var þannig að stím var einungis um 1 klst og frekar kalt var í veðri. allur aflinn fór á fiskmarkað og fengust um 300 kr fyrir kílóið
Eins og sést á myndum og kanski ástæða þess að það hleðst svona hátt í kringum lestina er einföld. þeir lokuðu þannig að fiskurinn færi ekki undir línuna og þannig gátu haldið lensportunum opnum á bátnum
Myndir Steindór Már Ólafsson