Risatúr hjá Björgúlfi EA,2019
núna er sá tími þegar að íslensku togararnir fara norður í Barnetshafið til þess að veiðar þar þorsk.
helst eru þetta frystitogararnir og var t.d Örfirsey RE með risatúr þangað um 1300 tonn, Sólberg ÓF er á leið í land með risatúr og Kleifaberg RE er búinn að milli landa í Noregi einu sinni,
tveir ísfiskstogarar hafa verið í Barnetshafið Kaldbakur EA og Björgúlfur EA,
báðir togarnir komu í land með fullfermi
Kaldbakur EA kom með 254,2 tonn og af því þá var þorskur 234 tonn,
Túrinn var alls 13 daga langur og af því þá voru um 5 dagar á veiðum eða um 50 tonn á dag
um 8 daga tekur að sigla til og frá miðunum.
Þessum afla var svo til jaft skipt á milli frystihúsanna á Akureyri og á Dalvík,
Björgúlfur EA
Björgúifur EA kom aftur á móti með risalöndun og enn sem komið er þá er þessi löndun sú stærsta sem að Björgúlfur EA hefur komið með í land
alls var landað úr skipinu 264,4 tonn og af því var þorskur 244 tonn og var ísprósenta um 13% eða sú sama og hjá Kaldbak EA,
150 tonn af þorskinuim fór til vinnslu á Akureyri en restin á Dalvík,
Alls var túrinn 12 dagar í heildina og af því þá voru aðeins 4 dagar á veiðum og var því þetta mokveiði því þetta eru um 66 tonn á dag
Björgúlfur EA mynd Brynjar Arnarson