rúm 3200 tonn af aukaafla uppsjávarskipa árið 2025

Fyrr á þessu ári þá birtist hérna á Aflafrettir  heildarafli uppsjávarskipanna árið 2025

síld, kolmunni, loðna og makríll,

en það voru ekki bara þessar tegundir sem skipin komu með í land því það var töluvert

af öðrum tegundum sem mætti kalla meðafla eða aukaafla.

 3223 tonn
Samtals þá komu skipin með í land 3223 tonn af öðrum tegundum en þessar fjórar helstu sem að ofan eru nefndar

 Spærlingur
 lang mest var af spærling sem skipin komu með eða 2027 tonn  og var Gullberg VE með mest af spærling

eða 345 tonn, Vilhelm Þorsteinsson EA kom þar rétt á efti rmeð 344,3 tonn.  Börkur NK var með 277 tonn og Hákon ÞH 270 tonn.

Gullax
Næst á eftir Spærling var gullax, en skipin komu með í land alls 513 tonn af gullaxi

Hoffell SU var með mest af gullaxi eða 118 tonn og Jón Kjartansson SU var með 102 tonn, 

Voru þetta einu skipin sem komu með yfir 100 tonn af gullaxi, næstur á eftir þeim var Börkur NK með 55 tonn af gullaxi.

Karfi
Þriðja tegundin sem skipin með af kemur nokkuð á óvart, en það var karfi, og var ansi mikið af honum 

eða 334 tonn af karfa sem skipin komu með .
Hákon ÞH var með mest af karfa alls 84 tonn.  
Ásgrímur Halldórsson SF var með 49 tonn 
Heimaey VE var með 31 tonn 
og Vilhelm Þorsteinsson EA var með 30 tonn af karfa

 Grásleppa
Fjórða tegundin sem mest var landað af skipunum var grásleppa
en skipin lönduðu alls 137 tonnum af grásleppu sem er töluvert magn 

Aðalsteinn Jónsson SU var með mest af grásleppu eða 12,7 tonn 
og á eftir honum kom Beitir NK með 12,6 tonn.
Hoffell SU var með 11,9 tonn 
og Víkingur AK 11 tonn.

Ufsi
Fimmta mesta tegundin var ufsi, og hann og karfi komu mest sem meðafli skipanna þegar
þau voru að veiða síld
alls komu skipin með 97 tonn af ufsa.
og var Hákon ÞH með mest af ufsa eða 27,5 tonn
Ásgrimur Halldórsson SF var með 15,7 tonn 
Heimaey VE var með 10,8 tonn af ufsa

Þorskur
á eftir ufsanum kom þorskur
en skipin samtals með í land 44 tonn af þorski
Ásgrímur Halldórsson SF var efstur í þorskinum með 16,5 tonn
á eftir honum kom Hákon ÞH með 12,7 tonn

Voru þessi tvö skip með áberandi mest af þorski því að næsta skip á eftir þeim tveim með þorsk
var Svanur RE með 3,7 tonn af þorski

Hæstu skipin
á endanum þá var Hákon ÞH með  mestan aukaafla skipanna árið 2025 með 431 tonn
Vilhelm Þorsteinsson EA var með 415 tonn
Gullberg VE var með 378 tonn
Börkur NK  var með 369 tonn
Beitir NK va rmeð 256 tonn
Huginn VE va rmeð 227 tonn
Hoffell SU var með 204 tonn
Ásgrímur Halldórsson SF var með 193 tonn,

Allur þessi meðafli fór allur í bræðslu

Hákon ÞH mynd Gísli Reynisson