Siggi Bessa SF kominn til Sandgerðis,2020
Báturinn Siggi Bessa SF hefur verið gerður út frá Hornafirði í að vera 12 ár.
Báturinn var smíðaður árið 2007 og hét fyrst Bangsi BA
var síðan seldur til Hornafjarðar og fékk þar nafnið Siggi BEssa SF
Báturinn hefur kanski ekki verið mikið áberandi á aflalistanum sem hefur verið í gangi á Aflafrettir.is
Þó var báturinn einn af þeiim fyrstu hér á landinu til þess að hefja veiðar á makríl á handfæri byrjaði á þeim veiðum í ágúst árið 2008.
Siggi Bessa SF hefur alla tíð verið óyfirbyggður
núna verður breyting á því, vegna þess að báturinn er kominn til Sandgerðis
til Sólplasts en þar hefur Stjáni og hans menn í Sólplasti verið að búa til yfirbyggingu á bátinn,
mun Siggi Bessa SF verða yfirbyggður þar og verður fróðlegt að sjá hvernig báturinn mun líta út eftir breytingar
Mynd Gísli Reynisson