Sigurfari II SH 105 árið 1983
Ég ætla að fara með ykkur í tvö ferðalög núna. skoða tvo togara árið 1983.
sá sem við skoðum í þessum pistli er togari sem lengst af hét Sturlaugur H Böðvarsson AK, en þegar að togarinn kom
á flot árið 1981, þá hét togarinn Sigurfari II SH 105 og var gerður út þá frá Grundarfirði til ársins 1986 þegar að togarinn var seldur til HB á Akranesi
og þar fékk togarinn nafnið Sturlaugur H Böðvarsson AK.
Togarinn var smíðaður á Akranesi.
Nú skulum við líta á hvernig Sigurfara II SH gekk að veiða árið 1983.
Janúar.
Sigurfari II SH kom snemma með fyrstu löndun sína, því að hann landaði 5.janúar, en var þá með lítinn afla, aðeins um 60 tonn
Heildarafli í janúar 175,7 tonn í 2 löndunum
Febrúar.
Febrúar var ansi góður, en togarinn landaði þrisvar og samtals 422,5 tonn , og það gerir rúm 140 tonn í löndun,
mest 149,2 tonn í einni löndun.
Mars.
Ekki var mikið um að vera í mars, en Sigurfari II SH landaði aðeins tvisvar, alls 259,5 tonnum og var stærri löndunin nokkuð góð , 161 tonn.
Apríl.
Apríl var feikilega góður, en mokveiði var hjá togaranum og landaði Sigurfari II SH 523,6 tonnum í aðeins þremur löndunum og mest 188,2 tonn, sem fékkst eftir 7 daga á veiðum,
það gerir um 27 tonn á dag.
Maí.
Maí var rólegur, en togarinn landaði aðeins tvisvar, alls 320 tonnum og þar af 191 tonn í einni löndun.
Júni.
Júní var líka rólegur, en togarinn landaði tvisvar alls 245,2 tonnum og var stærri löndunin 143 tonn,
Júlí.
Mokveiði var hjá Sigurfara II SH, en togarinn landaði 398 tonnum í aðeins tveimur löndunum, og var stærri löndunin fullfermi, 205,6 tonn, og var
þetta stærsta einstaka löndun Sigurfara II SH árið 1983.
Ágúst.
Ágúst var eini mánuðurinn á árinu 1983 sem að togarinn landaði í fjögur skipti, en Sigurfari II SH var með 617 tonna afla í fjórum löndunum
eða 154 tonn að meðaltali. mest 182 tonn í einni löndun.
September.
September var rólegur, en togarinn landaði alls 211 tonnum í tveimur löndunum.
Október.
Þessi mánuður var nokkuð góður, en togarinn landaði alls 318,3 tonnum í þremur löndunum og mest 126 tonn
Nóvember.
Þennan mánuð þá landaði Sigurfari II SH í heimahöfn sinni , Grundarfirði, en togarinn landaði öllum afla sínum í Grundarfriði árið 1983.,
og kom togarinn með 154,7 tonn í land, en fór síðan út að veiða í siglingu og fór til Grimsby í Englandi og landaði þar 107 tonnum, mest af karfa.
Samtals afli í nóvember, 261,8 tonn.
Desember.
Desember endaði með tveimur löndunum alls 217 tonnum og var síðasta löndun Sigurfara II SH árið 1983, 23.desember.
Heildarafli.
Árið 1983 var nokkuð gott hjá togaranum og hann var nokkuð ofarlega yfir aflahæstu togaranna árið 1983, því hann var einn af þeim sem
náðu yfir fjögur þúsund tonna afla,
Heildarafli 4017,2 tonn í 30 löndunum, sem gerir 134 tonn í löndun að meðaltali, sem er býsna gott

Sigurfari II SH mynd Vigfús Markússon