Skálavík SH 208 árið 1974
Það er ekki langt síðan ég fór með ykkur í ferðalag aftur í tímann.
núna fer ég með ykkur í ferðalag, aftur til ársins 1974 og við skoðum bát sem var gerður út frá Ólafsvík í
töluvert mörg ár. bátur þessi hét Skálavík SH 208 og reyndar þá urðu bátarnir sem hétu þessu nafni 3 eða 4 bátarnir.
Skálavík SH 208 réri ansi mikið árið 1974, og endaði í 10 sætinu yfir þá báta sem mest réru á landinu árið 1974.
en lítum á hvernig bátnum gekk
Janúar
Skálavík SH byrjaði árið á netum og var með 50 tonn í 12 róðrum og mest 12,3 tonn í einni löndun.
Febrúar.
Báturinn var áfram á netum og gekk nokkuð vel, var með 83,4 tonn í 13 róðrum og mest 12,1 tonn í róðri
Mars.
Skálavík SH réri mjög mikið í mars, var alls með 200 tonn í 28 róðrum og mest 16,2 tonn í róðri, og báturinn var á netum
meðalafli 7,1 tonn í róðri.
Apríl.
Skálavík SH var áfram á netum og á þessum árum var ekkert hrygningarstopp og var aflinn hjá bátnum 134 tonn í 20 róðrum
Maí til 11.maí og vertíðarlok
Báturinn réri til lokadags vertíðar á netum og landaði 22 tonnum í 8 róðrum
og vertíðin var býsna góð, aflinn 488 tonn sem allt var tekið á netin
Eftir 11.maí og út maí
Skálavík SH landaði aðeins í eitt skipti eftir 11.maí og kom með 2,6 tonn í land
Júni.
Báturinn skipti yfir á dragnót og hóf veiðar um miðjan júní. var með 29,5 tonn í 8 róðrum.
Júli
áfram var báturinn á dragnót og landaði alls 30,9 tonn í 12 róðrum .
Ágúst.
Ágúst var þokkalegur, Skálavík SH var á dragnót og landaði 39,7 tonnum í 12 róðrum og mest 4,8 tonn
September
Báturinn réri nokkuð mikið í september, fór í 16 róðra en aflinn var frekar tregur, heildarafli í september 23,7 tonn og
það gerir meðalafla uppá um 1,5 tonn.
Október
Í Október þá skipti báturinn um veiðarfæri og fór aftur á netin og það gekk mjög vel hjá bátnum í október, því að Skálavík SH
landaði alls 67,4 tonnum í 12 róðrum , og það gerir 5,6 tonn í róðri. mesti afli í róðri, 18,8 tonn sem er ansi gott.
Nóvember
Nóvember var erfiður útaf leiðinda veðri, og komst báturinn aðeins í átta róðra og landaði 40 tonnum, en þó um 5 tonn í róðri að meðaltali
Desember
Veður í desember var mun betra og fór Skálavík SH í ansi marga róðra, fór í 19 róðra og aflinn 43,5 tonn, sem gerir um 2,2 tonn í róðri að meðatali
var báturinn á netum
Heildin,
Árið 1974 var nokkuð gott fyrir bátinn, hann endaði í 10 sæti yfir alla báta á Íslandi miðað við fjölda róðra en báturinn fór í
169 róðra
og heildaraflinn árið 1974, 766 tonn, sem gerir 4,5 tonn í róðri að meðatali

Skálavík SH mynd Vigfús Markússon