Slippur númer þrjú hjá Steinunni SH árið 2026
Fuglinn Lóan er sagður vera vorboðinn , þegar hún kemur og syngur sitt lag, að þá sé vorið og sumarið að koma
aftur á móti á Suðurnesjunum þá er ekki beint lóan sú sem boðar komu vorsins og sumarsins.
Vorboðinn Steinunn SH
Í Ólafsvík þá hefur verið gerður út bátur þar núna í hátt í 40 ár sem heitir Steinunn SH, og á þessari öld þá var útgerðarmynstrið
svo til oftast þannig að báturinn réri vertíðina á dragnót og síðan í maí þá var tekið á því og veitt nokkuð duglega fram að lokadegi
vetrarvertíðar sem er 11.maí og var þá kvótinn á bátnum kláraður.
eftir þetta, þá var bátnum silgt til Njarðvíkur þar sem báturinn var tekinn í slipp og var báturinn í slippnum allt sumarið þangað til í lok ágúst þegar að báturinn
FISK kaupir í bátnum
kom aftur til Ólafsvíkur, og vegna þessari rútínu hjá útgerð Steinunnar SH með bátinn eftir 11.maí þá var hann hálfgerður vorboðin á Suðurnesjum,
árið 2021 þá kaupir FISK á Sauðárkróki 60% hlut í útgerð bátsins, og þá breyttist aðeins útgerðarmunstur bátsins, jú báturinn kom á sínum tíma
í Njarðvík en lá ekki allt sumarið heldur réri meira enn vanalega yfir sumartímann.
Núna árið 2026
þangað til núna árið 2026.
því að núna í ár þá hefur Steinunn SH komið í alls þrjú skipti í slippin í Njarðvík.
Báturinn kom fyrst á sínum reglulega tíma , um miðjan maí og fór þaðan í lok byrjun ágúst.
Báturinn kom síðan aftur um miðjan ágúst, og það ekki útaf góðu, því að það fór að leka með öxli og síðan fannst slit
Ansi mikil útlitsbreyting
í stýri og var báturinn í slippnum í Njarðvík í tæpan mánuð.
núna er Steinunn SH kominn í þriðja skiptið í slippinn í Njarðvík og þegar báturinn fer þaðan þá verður nokkuð áberandi útlitsbreyting á bátnum,
Báturinn var smíðaður árið 1971 í Garðabæ og frá upphafi þá hefur báturinn verið með frammastur og bómukrana,
núna mun það hverfa því að smíða á nýtt 7 metra hátt frammastur og enginn krani á því heldur verður settur nýr glussakrani á bátinn.
eigendur Steinunnar SH hafa í gegnum árið hugsað mjög vel og bátinn ásamt því að breyta bátnum ansi mikið frá því hann var upprunalega
og að skipta um mastur er má segja eitt það síðasta sem er gert við bátinn sem er upprunalegt.
og verður áhugavert að sjá hvernig nýja mastrið mun koma út á bátnum með nýja krananum

Steinunn SH mynd Grétar Þór, Þarna kominn með nýja brú og breyttum skut, en frammastrið ennþá

Steinunn SH áður enn skipt var um brú og skutnum breytt , en frammastrið er þarna, mynd Tryggvi Sigurðsson