Snjóflóð á Flateyri og Suðureyri,2020
Veðurfarið síðan svo til frá áramótum hefur vægast sagt verið alveg skelfilegt. Bátar hafa meira og minna verið í landi í höfnum útum allt land
og margir báta ekkert komist á sjóinn síðan frá Áramótum,
Mjög miklum snjó hefur kyngt niður og sérstaklega á vestfjörðum,
þeir hafa meira og minna verið lokaðir undanfarna daga og mikill snjór safnast saman í fjöllinn.
Núna um miðnætti féllu 3 snjóflóð fyrir vestan. Eitt féll á móts við Suðureyri
og tvö féllu við Flateyri. bæði þau flóð féllu á varnargarðinn sem er ofan við bæinn,
og annað flóðið orsakaði mikla flóðbylgju í höfninni á Flateyri.
Varnargarðinn á Flateyri er eins og stórt A í laginu og annar endinn á varnargarðinum liggur þvert á grjótgarðinn sem er við höfnina á Flateyri,
flotbryggja sem var í höfninni losnaði frá og við hana þá lágu Blossi ÍS og Sjávarperlan ÍS
hinir bátarnir lágu við steypta kantinn til móts við flotbryggjuna
Bátarnir sem eru sokknir eða mikið skemmdir eru
Orri ÍS sem er hvað þekkstastur fyrir að hafa eitt sinn heitir Ásmundur GK eða séniver eins og hann var kallaður,
Brói ÍS
Eiður ÍS sem er 50 tonna stálbátur gerður út á dragnót
Sjávarperlan ÍS
Blossi ÍS sem meðal annars var aflahæstur allra smábáta að 13 BT árið 2019
og Guðjón Arnar ÍS sem er um 20 tonna stálbátur. sá bátur heitir í höfuðið á Guðjóni Arnari sem var lengi skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS og síðar alþingismaður,
dýpið þarna við höfnina er um 5,5 til 6,5 metrar.
þegar þetta er skrifað þá er varðskipið Þór á leiðinni frá Ísafirði til Flateyrar með 35 manna björgunarlið.
Fremri báturinn er Sjávarperlan ÍS og aftari báturinn er Blossi ÍS
Flotbryggjan ónýt og þarna í bakgrunni er Aldan ÍS sem slapp
Orri ÍS fremri báturinn og Guðjón Arnar ÍS aftari báturinn,
Séð í höfnina. myndir aðsent