Snjóflóðið á Flateyri. einn bátur kominn uppá bryggju,2020
Núna er liðin rúm ein vika síðan stóra snjóflóðið féll á varnargarðanna á Flateyri og stór spýja fór á höfnina á Flateyri
þar sem að 6 bátar skemmdust mikið.
núna er búið að hífa einn bát uppá land og er það Blossi ÍS, og er hann ansi illa farinn í það minnsta að innan, þótt að hann
líti ekki svo illa út að sjá
Brói KE er komin að bryggju og sömuleiðis Guðjón arnar ÍS sem var sokkinn.
Guðjón Arnar ÍS er mikið skemmdur því sjór fór um allt í bátnum,
enn hérna er nýjar myndir frá staðnum,
Ennþá eru tveir bátar í sjónum sem eru á hvolfi. Eiður ÍS og Sjávarperlan ÍS. Orri ÍS er á sínum stað
+
Blossi ÍS á bryggjunnij. Eiður ÍS á hvolfi við höfnina og Sjávarperlan ÍS þarna utar
Brói KE og Guðjón Arnar ÍS
Brói KE
Guðjón ARnar ÍS
Gupjón Arnar ÍS og Brói KE
Brói KE
Sjávarperlan ÍS
Blossi ÍS kominn á land.
Fosnakongen sem er að hífa þá upp. Myndir Aðsent