Straumur ST seldur kvótalaus til Dalvíkur. 2022.


Síðan árið 2015 þá hefur verið gerður út bátur frá Hólmavík sem heitir Straumur ST 65,  sá bátur var gerður út á línu og grásleppu

og var iðulega með aflahæstu grásleppubátum landsins.  

á bátnum var ekki mikill kvóti aðeins um 50 tonn, sá kvóti var seldur í lok júlí 2021

og kaupandinn var Einhamar ehf í Grindavík og fór allur kvótinn yfir á Véstein GK.  nema lítill hluti af makríl sem fór yfir á Þinganes SF.

báturinn sjálfur var síðan seldur núna í janúar 2022 til Dalvíkur .

kaupandinn þar var G.Ben útgerðarfélag.  enn þeir gera út bátanna Arnþór EA og Sæþór EA.

Sæþór EA er gerður út á net allt árið, enn Arnþór EA hefur verið gerður út á grásleppu.

Nýi báturinn hefur fengið nýtt nafn og heitir Guðmundur Arnar EA 102.

Þess  má geta að þessi bátur var smíðaður árið 2002 og hans fyrsta nafn var Kristinn SH 112, en það jafn er ansi þekkt 

og í dag er báturinn Kristinn SH eini 30 tonna báturinn sem rær með balalinu.


STraumur ST mynd kvótmarkaðurinn