Súlan EA 300 árið 1993
Ég er staddur á Akureyri núna á Hótel KEA og fékk mér göngutúr áðan, og fór niður að Torfunes bryggju
þar skammt frá henni er ansi flott minnismerki og saga um Súluna EA 300 sem var bæjarprýði á Akureyri við Torfunes bryggju í tugi ára
því að þegar að Súlan EA var ekki við veiðar, þá lá hún bryggju nýmáluð og fín beint neðan við Gilið á Akureyri
svo mér datt í hug að fara með ykkur í ferðalag
ekki langt, við skulum fara aftur til ársins 1993 og skoðum Súluna EA 300 og hvernig henni gekk að veiða árið 1993
Janúar
Súlan EA 300 byrjaði árið 1993 um miðjan janúar með nót og á síld og kom með 118 tonn af síld til Vopnafjarðar
fór síðan yfir á loðnunót og landaði 1359 tonnum í tveimur löndunum á Neskaupstað
Febrúar
Hérna var loðnuvertíðin kominn í fullan gang og áhöfnin á Súlunni EA tók að sjálfsögðu þátt í þvi, þarna var líka loðnufrysting kominn í gang
og landaði Súlan EA alls 5727 tonnum í 10 löndunum. mest 801 tonn í einni löndun
Reyndar þá eru þetta 8 fullfermis túrar, því að snemma í febrúar þá kom Súlan EA með 69 tonn af loðnu í frystingu til Ólafsfjarðar og síðan
fór til Siglufjarðar með restina af aflanum 697 tonn og var því samtals me 766 tonn sama daginn
seinna í febrúar þá kom Súlan EA fyrst með 417 tonn til Reyðarfjarðar og síðan 327 tonn til Seyðisfjarðar sama daginn
Mars
Hérna eru lokin á loðnuvertíðinni og landaði Súlan EA 1871 tonnum í þremur löndunum sem landað var á Þórshöfn og Krossanesi
Eftir loðnuvertíð þá skipti Súlan EA yfir á rækjuveiðar og fór til Húsavíkur
og kom til Húsavíkur með 18,7 tonn af rækju í einni löndun
Apríl.
Súlan EA var á rækjuveiðum allan apríl og gekk ansi vel, var með 89,3 tonna rækjuafla í fjórum löndunum og mest 27,1 tonn í einni löndun
Maí
Áfram var Súlan EA á rækjuveiðum og áfram á Húsavík, var með 72 tonna rækju afla plús 4,2 tonn af fiski í fjórum róðrum, og mest 25,2 tonn í einni löndun
Júní
Júní mánuður var ansi góður hjá Súlunni EA en báturinn var með 92,4 tonn af rækju plús 3,5 tonn af fiski í 4 löndunum og mest 28,3 tonn í einni löndun
Júlí
Þegar hérna er komið við sögu þá er Júlí mánuður síðasti mánuðurinn hjá Súlunni EA á rækju og var báturinn með 54,4 tonn í 3 róðrum af rækju
auk 6,5 tonn af fiski sem landað var á Húsavík.
Ágúst
Eftir ansi gott úthald á rækjunni þá skipti áhöfnin á Súlunni EA yfir á nótina aftur og fór á sumarloðnuna í ágúst og gekk mjög vel
var með 4469 tonn í 6 löndunum, og það gerir 745 tonn í löndun , semsé fullfermi í hverjum túr
þessum afla landaði Súlan EA á Vopnafirði, Krossanesi og Siglufirði, stærsta löndun 763 tonn á Vopnafirði
September
Loðnuveiðar héldu áfram inní haustið og gengu þær ansi vel
Súlan EA var með 3855 tonna afla í 6 löndunum og það gerir 643 tonn í löndun, mest 775 tonn sem landað var á Raufarhöfn
annars þá landaði Súlan EA nokkuð víða í september,
en báturinn kom með loðnu til Raufarhafnar, Siglufjarðar, Þórshafnar og Krossanes.
Október.
Súlan EA var áfram á loðnuveiðum í október og landaði alls 2526 tonnum í 5 löndunum og það gerir um 505 tonn í löndun
mest 763 tonn sem landað var á Ólafsfirði.
en Súlan EA landaði loðnu á þremur höfnum í október. Krossanesi, Ólafsfirði og Neskaupstað.
Nóvember
Súlan EA byrjaði árið 1993 á síldveiðum og báturinn endaði árið 1993 líka á síldveiðum,
en Súlan EA landaði 1333 tonnum af síld á Neskaupstað í tveimur löndunum , og var stærri lönduninn 761 tonn.
Engum afla var landað í Desember
Heildarafli.
Árið 1993 var ansi gott fyrir Súluna EA
en heildarafli var alls 21617 tonn og af þeim afla þá voru
327 tonn af rækju og 33 tonn af fiski
19807 tonn af loðnu
1451 tonn af síld

Súlan EA mynd Brynjar Gauti