Sunnutindur SU á Djúpavogi,,2018
Var á djúpavogi í sólinni í gær 12.júlí þegar ég sé að Sunnutindur SU er á landleið,
ákvað að smella mér í göngutúr og kanna hvað þeir væru að fiska. byrjaði á því að taka myndir af bátnum úr fjarlægð,
þegar ég kom að bátnum þá kom í ljós að enginn var fiskurinn um borð,
því að þeir voru á útleið þegar áhöfninn var þess var að eitthvað hefði brotnað í festingunni við línuspilið,
þannig að þeir voru nauðbeygðir til þess að snúa við og fara í land og láta gera við festinguna til þess að geta notað spilið.
Myndi Gísli Reynisson