Togveiðar á Húnaröst ÁR ,1984
jæja árið 1984 hjá mér í vinnlslu er komið á fullt og núna þegar þetta er skrifað þa´er ég búinn að mynda um 15 þúsund aflaskýrslur
frá Vestmannaeyjum, suður og vestur í Ísafjörð,
margir gullmolar sem ég hef séð og mun ég birta af og til fréttir af bátum frá árinu 1984.
Loðnuveiðar voru leyfðar á fullu árið 1984 og gengu þær vel,
á milli loðnuúthalda þá voru loðnuskipin mörg hver á rækju og líka á trolli,
einn af þeimi bátum sem var á trolli yfir sumarið var Húnaröst ÁR 150,
Báturinn lagði afla sinn upp hjá Glettingi hf á Þorlákshöfn og óhætt er að segja að Húnaröst ÁR hafi fiskað vel,
lítum á aflatölurnar,
Júni
Báturinn hóf veiðar um miðjan júni og landaði einni löndun 48,1 tonn
Júlí
Hann var mjög góður, bátuirnn landaði alls 254,8 tonní aðeins 3 róðrum eða 84,9 tonn í róðri,
ef við lítum á landanir,
þá ´kom báturinn fyrst með 78,4 tonn, síðan kom bátuirnn með 86,3 tonn
og síðasta löndun bátsins var stór, eða 90,1 tonn sem fékkst eftir 6 daga á veiðum eða um 15 tonn á dag
ÁGúst
ágúst var líka góður, og landaði Húnaröst ÁR þrisvar. alls 212,8 tonn eða um 71 tonn í róðri,
stærsta löndun bátsins var um miðjan ágúst en þá kom báturinn með 89,4 tonn
Sumarið var því ansi gott hjá Húnaröst ÁR
því alls landaði báturinn 515,7 tonn í 7 róðrum eða 73,6 tonn í róðri
Húnaröst ÁR mynd Tryggvi Sigurðsson
Og fyrir þá sem vilja styðja við bakið á mér í þessum aflatölu grúski mínu þá má leggja á mig á 20075-3709 bók 0142-05-1072