Trilla GK nærri sokkin í Sandgerðishöfn

Það gekk mikið á í óveðrinu núna um helgina, á Akureyri þá brotnaði polli með þeim afleiðingum að Vilhelm Þorsteinsson EA slitnaði svo til frá bryggju

en það tókst að koma áhöfn á skipið og ræsa vélar.
 
 Sandgerðishö0fn
og í Sandgerðishöfn fór betur en á horfðist, því að það brotnaði einn fingur við flotbryggju númer 3 í Sandgerði , en 

mikil tæring var kominn í einn stálbitann sem var í fingrinum og gaf hann sig og brotnaði.  við þennan fingur þá lá báturinn 
 
Trilla GK
Trilla GK , Sem áður var  Séra Árni GK og er í eigu Jónínu Hansen og fjölskyldu í Sandgerði, en sonur hennar og Jóns , 

nokkuð sérstakt nafn á báti, en Jónína var sjálf kölluð Trilla af föður sínum

er Jón Þór sem er formaður björgunarsveitarinnar Sigurvonar í Sandgerði.

Jónína hefur það fyrir reglu þegar að veður er slæmt að kíkja á bryggjuna og athuga með bátinn, og laugardagsmorguninn þá fannst henni báturinn 

vera frekar siginn og frekar furðulega staðsettur á bryggjunni, 

 enda var þá kominn töluverður sjór í bátinn, og var allur lúkarinn á kafi í sjó og kominn sjó í brúnna.

hafði þá hluti af fingrinum sem Trilla GK var við festar við, nuddast það mikið við skrokkinn á bátnum að komið var nokkuð stórt gat á bátinn, og þar 

fossaði inn sjó.    

Hefði Jónína ekki litið eftir bátnum sínum eins og gerir vanalega þá hefði báturinn liklega sokkið þarna við bryggjuna.

Jónína og fjölskyldan ætlaði að fara að stunda ufsaveiðar á færi núna í vetur á bátnum. 

Slökkviliðið  og Köfunarþjónusta Sigurðar komu með dælur og náðu að dæla sjó úr bátnuim 

og síðan kom Jóhann Haukur, eða Johnny á bátnum sínum Hawkerinn GK og dró Trillu GK yfir á Norðurgarðinn þar sem að báturinn var tekinn á land.

Tjónið er töluvert mikið því að í lúkarnum voru allar tölvunar og eru allur rafbúnaður í bátnum ónýtur.  

Jónína áætlaði að tjónið gæti verið 8 til 10 milljónir króna.

Tryggingarar taka nu við þess máli, en líklega er Sandgerðishöfn skaðabótaskyld líka því að fingurinn brotnaði og því kom gat á bátinn.

 Þriðji bátuirnn sem Johnny bjargar
Það má bæta við að Trilla GK er þriðji báturinn sem að Johnny skipstjóri á Hawkernum GK, á þátt í að bjarga núna í ár, og það allt innan Sandgerðishafnar.

fyrst var það Fönix RE sem silgdi á grjótgarðinn á Suðurgarðinum, síðan var annar bátur þar sem að það brotnaði lensirör og sjór tók að flæða

inn í bátin og síðan núna Trilla GK.  


Mynd Jónína Hansen

Mynd Gísli Reynisson
Endinn á fingrinum sem var orðin tærður af ryði Mynd Gísli Reynisson
Dælt úr Trillu GK.  Johnny þarna með grænu húfuna

Hawkerinn GK að draga Trillu GK yfir á Norðurgarðinn þar sem báturinn var hífður á land.

Þarna er búið að dæla töluverðum sjó úr bátnum, en þarna var allt á kafi og komin sjór í brúnna. Mynd Johnny Hawk

Mynd Jón Þór Jónsson