Vigtin í Sandgerðishöfn dæmt ónýt,2020

Eins og kanski flestir lesendur Aflafretta hafa tekið eftir þá er er eigandinn af Aflafrettir frá Sandgerði,


Sandgerði á sér mjög langa sögu sem einn af stærstu útgerðarbæjum íslands, og má nefna að frá árunum 1970 og vel fram yfir aldamótin þá 

var Sandgerði sá staður sem ÍSlandi sem var með flestar landanir,  enn mikill fjöldi af minni bátum hefur 

landað í Sandgerði í gegnum árin,

 1997
Árið 1997 þá var vígt nýtt og glæsilegt hafnarhús sem hýsti Fiskmarkað Suðurnesja sem og nýja aðstöðu fyrir 

hafnarvigtina og starfsemi hafnarinnar.

vigtin í Sandgerði hefur þjónað hlutverki sínu nokkuð vel síðan hún var sett á fyrir 23 árum síðan,

Og má nefna að á þessum 23 árum þá hafa yfir 500 þúsund tonn verið vigtuð á henni og er þá loddugangan meðtalin. 

 Endalok
en nú er svo komið að búið er að dæma vigtina ónýta og ekki er hægt að vigta á henni.

að sögn Rúnars V Arnarsonar hafnarstjóra í Sandgerði þá kom í ljós um síðustu áramót að vigtin var orðin ansi slæm á sig  komin. 

kom í ljós að allt burðarvirki vigtarinnar var orðið ryðgað  og skynjarar voru margir hverjir orðnir ónýtir.

og var ekki talið þorandi að láta vigta meira á henni og  því var vigtin lokuð og dæmt ónýt. 

 Ný Vigt
Farið var í útboð í nýja hafnarvigt og  Samið var við Vogir og Lagnir á Akranesi um að setja upp nýja vigt og mun

 hún koma um næstu mánaðarmót,

Þó svo að bílavogin sjálf sé orðin ónýt  þá hefur það ekki þýtt lokun á höfninni því höfnin keypti pallavog og fékk að auki

aðra pallavog lánaða og svo er samstarf á milli Sandgerðishafnar og Fiskmarkað Suðurnesja  um vigtun afla,

Hefur gengið vel að nota þessar vigtir þótt að vinnan sé aðeins meiri hjá starfsmönnum hafnarinnar

t.d hafa Langanes GK,  Pálína Þórunn GK,  Sigurfari GK og  hinir dragnótabátarnir allir landað í Sandgerði og hefur 

þá verið vigað með pallavogunum.

 
Rúnar sagði svo að lokum að þrátt fyrir þetta þá myndi  höfnin halda áfram að sinna þeim bátum sem koma til hafnarinnar 

af eins bestu getu og  mögulegt er og ef einhverjar spurningar vakna þá má senda póst á  runar@sandgerdishofn.is