Vöttur SU 3 árið 1976
Fyrir nokkrum dögum síðan þá birti ég hérna svona ferðalag aftur í tímann til ársins 1976 og þá
vorum við að skoða 30 tonna eikarbát , sem var einn af nokkrum sem voru smíðaður hjá Vör á Akureyri og gengur þessir bátar
undir nafnið Vararbátarnir.
Nú skulum við aftur fara í ferðalag og aftur til ársins 1976 og núna skoðum við annan Varar bát.
þessi bátur var með sknr 1414 og hét Vöttur SU 3 og kom til Eskifjarðar í mars árið 1975.
Báturinn var reyndar ekki lengi á Eskifirði því hann var seldur árið 1978 til Dalvíkur og fékk þá nafnið Vinur EA 80,
seinna fékk báturinn nafnið Aðalbjörg II RE og síðan Gulltoppur ÁR
og þessi bátur er ennþá til og heitir Áskell Egilsson EA og er hvalaskoðunar bátur, og var þetta bátur númer 5 frá Vör, sem að Áskell Egilsson
eða Keli eins og hann var kallaður átti og smíðaði ásamt starfsmönnum í Vör
en hvernig gekk árið 1976 hjá bátnum
lítum á það.
Janúar.
Vöttur SU hóf veiðar með línu um miðjan janúar og fór í aðeins 5 róðra enn það gekk nokkuð vel , var með 25 tonna afla í þessum 5 róðrum eða um 5 tonn í róðri
Landað á Eskifirði
Febrúar
Frekar lítið róið í þessu mánuði, Vöttur SU fór aðeins í tvær sjóferðir og var með 6,3 tonna afla.
Mars
Hérna skipti báturinn yfir á netin og landaði áfram á Eskifirði, og fór reyndar í aðeins fjóra róðra, en veitti nokkuð vel, var með 29,4 tonn
og mest 10,6 tonn í einni löndun,
Apríl
Vöttur SU var áfram á netum og gekk mjög vel, því að báturinn var með 92,4 tonna afla í 11 róðrum og það gerir 8,4 tonn í róðri og mest 18,6 tonn í einni löndun , sem er svo til
fullfermi hjá bátnum,.
Maí til 11.maí. lokadagur vetrarvertíðar.
Vöttur SU fór í þrjá róðra og gekk nokkuð vel í þessum þremur róðrum því að báturinn var með 19,8 tonna afla.
Maí eftir 11 og til enda maí.
Það er ekki mikið um að bátar frá Eskifirði fari til veiðar á humar, en eftir vetrarvertíðina þá fór Vöttur SU á humarveiðar
og landaði öllum aflanum sínum á Eskifirði,
og Maí byrjaði nokkuð vel, fór í þrjá róðra á humartrolli og var alls með 23 tonna afla og af þeim afla var humar 5,6 tonn
Júní
Vöttur SU var áfram á humarveiðum og gekk mjög vel hjá bátnum, landaði alls 35,4 tonnum í 6 róðrum og af þeim afla þá var 11,2 tonn af humri.
Júlí.
Vöttur SU var á humri og var alls með 23 tonna afla í fjórum róðrum og af þeim afla þá var humar 7,5 tonn
Ágúst.
Humarveiðum hjá Vetti SU lauk í enda júlí enn báturinn hélt þó áfram togveiðum og skipti yfir trollið og var á trolli í ágúst
og landaði 13,4 tonnum í 3 róðrum.
September.
Vöttur SU skipti aftur um veiðarfæri og var núna kominn á línuna og fór í ansi marga róðra enn veiðin var treg. var með 16,4 tonn í 12 róðrum.
Október.
Vöttur SU var á línuveiðum frá Eskifirði og veiðin var treg, landaði 23,5 tonnum í 11 róðrum og það gerir 2,1 tonn í róðri að meðaltali.
Nóvember
Vöttur SU var á línu frá Eskifirði og var með 21,3 tonn í 12 róðrum, , sem gerir 1,8 tonn í róðri sem er frekar lítið
Desember
Vöttur SU var á línu og veiðin var töluvert betri núna í desember en fyrr um haustið og fór báturinn í aðeins 7 róðra
og var með 20,5 tonna afla eða 2,9 tonn í róðri
Heildarafli.
1976 var fyrsta heila árið sem að Vöttur SU var gerður út og eins og sést að ofan þá var báturinn á fjórum veiðarfærum
Línu, Net, Trolli og Humri,
heildaraflinn 354 tonn í 83 róðrum og af þeim afla var humar 28 tonn.
öllum aflanum allt árið 1976 var landað á Eskifirði.

Vöttur SU mynd frá síðu Þórhals Sófunsonar Gjörera

Vinur EA áður Vöttur SU mynd Már Jóhannesson