Bjartur NK 121 árið 1974
Það er nú ekki langt síðan ég fór með ykkur í ferðalag, það var reyndar ekki langt
fór með ykkur í ferðalag aftur til ársins 1974 og við skoðuðum þar bátinn Skálavík SH 208 frá Ólafsvík
Ef þið hafið ekki lesið það þá getið þið lesið um Skálavík SH HÉRNA
Ætla aftur með ykkur í ferðalag og núna aftur í árið 1974 en núna skoðum við ekki bát, heldur skoðum togara
nánar tiltekið togarann Bjart NK 121.
Bjartur NK var einn af Japanstogurnum og kom til landsins árið 1973 og árið 1974 var fyrsta heila árið sem að togarinn var gerður út.
en hvernig gekk honum?
já við skulum líta á það
Janúar
Togarinn kom með fyrstu löndun sína um miðjan janúar 94,5 tonn og kom svo aftur um viku seinna með 131 tonn.
Heildarafli í janúar 225,4 tonn í 2 löndunum, landað á Neskaupstað
Febrúar
Fyrri löndun Bjarts NK var ansi góð, 169,3 tonn og seinni löndunin var í Færeyjum
en þangað kom Bjartur NK með 103 tonna afla
Heildarafli í Febrúar 271,7 tonn í 2 löndunum,
Mars.
Mars mánuður var æði misjafn, Bjartur NK landaði alls 339,9 tonnum í 3 löndunum , og stærsta löndunin
var ansi stór, 194,6 tonn, og það má geta þess að þessi 194,6 tonna löndun var næst stærsta löndun Bjarts NK allt árið 1974.
Apríl,
Apríl var nokkuð góður, togarinn landaði þrisvar alls 349,7 tonn og mest 148,6 tonn í einni löndun,
Maí.
Aftur landaði Bjartur NK þrisvar sinnum og var núna með 298,2 tonn í 3 löndunum og mest 121,5 tonn.
Júní.
Mokveiði var hjá Bjarti NK í júní og var togarinn með tvær risa landanir. Togarinn landaði í þrjú skipti og var alls með 533,2 tonna afla ,
og það gerir 177,8 tonn í löndun.
Stærsta löndunin var vægast sagt risastór, því að Bjartur NK kom mest með 207,3 tonn í land sem fékkst eftir fimm daga á veiðum og það gerir 41,4 tonn á dag
næst stærsta löndunin var líka mjög góð, 180,3 tonn sem fékkst eftir 7 daga á veiðum, það gerir um 26 tonn á dag.
Júli
Júlí mánuður var líka mjög góður, og enn og aftur þá landaði Bjartur NK í þrjú skipti og var alls með 438 tonna afla, og það gerir um 146 tonn í löndun ,
stærsta löndun 157,2 tonn
Ágúst.
Ágúst byrjaði mjög vel, fyrsta löndun Bjarts NK í ágúst var 167,4 tonn,
og aftur þá landaði Bjartur NK í þrjú skipti og var alls með 391,8 tonn og það gerir um 131 tonn í löndun.
September
Um haustin þá var mjög algengt að togarar frá öllu landinu fóru í siglingu, til t.d Bretlands og Þýskalands, og Bjartur NK
fór í eina svoleiðis siglingu.
Fyrri löndun Bjarts NK var á Neskaupstað, en þar hafði hann landað öllum sínum afla árið 1974, nema tvær landanir
og fyrri löndun var 91,1 tonn.
togarinn fór síðan til Cuxhaven í Þýskalandi undir lok Septembers og landaði þar 132,6 tonnum, og mest af því var karfi
Október.
Bjartur NK landaði aðeins í eitt skipti í október, og kom með 107,9 tonn í land til Neskaupstaðar
Nóvember
Bjartur NK landaði þrisvar og var alls með 309,3 tonn og það gerir um 103 tonn í löndun.
Desember.
Árið endaði rólega hjá Bjarti NK, en togarinn landaði snemma í desember og var með lítinn afla aðeins 25,4 tonn.
Heildarafli
Árið 1974 sem er því fyrsta heila árið sem togarinn var gerður út var nokkuð gott,
Bjartur NK var með 3514,2 tonn í 31 löndun og það gerir 113 tonn í löndun
Þess má geta að Bjartur NK var gerður út alveg til ársins 2016 þegar að hann var seldur úr landi og var því þriðji
síðasti japanstogarinn sem hætti veiðum á Íslandi

Bjartur NK mynd Síldarvinnslan