Grásleppumok hjá Steina G SK. ,2020
Nýjsti grásleppulistinn kom á aflafrett.is núna fyrr í dag og hægt er að skoða hann hérna
og það kom í ljós að bátarnir sem eru að veiða í Skagafirðinum voru að fiska mjög vel á grásleppunni og má segja
að mokveiði hafi verið hjá bátunum,
t.d þurfti Hafey SK að fara í tvær ferðir til þess að ná öllum sínum 15 trossum í land og var aflinn hjá hjá bátnum samtals um 5 tonn,
og Þorgrímur SK fékk 4,3 tonn í fyrsta róðri sínum af grásleppu
Steini G SK
og síðan er það Steini G SK
Þorvaldur Steingrímsson fór ásamt syni sínum Þráin Þorvaldssyni að vitja um netin sín en þau voru meðfram ströndinni áleiðis að Selnesi.
í sjó voru 14 trossur og voru 6 net í trossu eða alls 84 net.
þegar leið á dráttinn hjá þeim feðgum þá fylltist eiginlega allt um borð. lestin var orðin full. nokkur kör á dekkinu voru sneisafull og nokkuð var laust á dekki,
þegar í land kom þá vigtaði úr bátnum alls 5,8 tonn og var grásleppa af því 5,6 tonn.
Þorvaldur sagði að hann hefði stundað grásleppuveiðar núna í um 10 ár enn aldrei áður hefur veiðin
byrjað jafn vel og er að gera núna.
Aflinn fer allur til Vignis á Akranesi og var aflaverðmætið fyrir þennan dag um 1,3 milljónir króna.
Steini G SK kemur til hafnar með tæp 6 tonn. Mynd frá Þorvaldi
sést vel hleðslan á bátnum því á neðri myndinni sést að járnið að aftan er á kafi á efri myndinnil
Steini G SK mynd Snorri Snorrason
Nýr bátur og hliðarbúgrein
Þessi bátur er nýr til Þorvalds en hann átti gáska bát sem hét sama nafni og var hann seldur. Þorvaldur var mjög ánægður með nýja bátinn
sem er cleopatra bátur smíðaður árið 2001 og hefur að mestu verið gerður út frá Norðurlandinu.
Fyrirtækið sem á bátinn heitir Krókaleiðir ehf og er ekki bara í útgerð bátsins, því að þeir eru með snjósleðaleigu og ferðir
ásamt því að vera með sumarhús skammt frá Varmahlíð